HR leitar að metnaðarfullum stjórnanda til að leiða markaðs- og samskiptamál háskólans. Viðkomandi mun fara fyrir öflugum hópi sérfræðinga á sviði hönnunar, framleiðslu, textavinnslu, upplýsingamiðlunar, viðburðastjórnunar og vefþróunar innan háskólans.
jobs.50skills.com/ru/is/24733
Posts by Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University
Desember og jólin geta verið tími gleði, en líka tími mikillar streitu. Langar þig að læra að byggja upp andlega þrautseigju til að takast á við streitu og erfiðleika? Opni háskólinn í HR býður upp á stutt námskeið 1. desember til að auðvelda fólki að njóta jólanna.
oh.ru.is/namskeid/pas...
HR óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í launavinnslu og frágang launa. Launafulltrúi veitir ráðgjöf, er í góðum samskiptum við starfsfólk og stjórnendur og vinnur náið með sérfræðingum á fjármála- og mannauðssviði.
jobs.50skills.com/ru/is/24524
#atvinna #vinna #lauststarf
Nýjasti viðmælandi Verkfræðivarpsins er Dr. Marta K. Lárusdóttir, prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Marta er einn helsti sérfræðingur landsins í Agile-verkefnastjórnun og jafnframt brautryðjandi í rannsóknum á sambandi manns og hugbúnaðar.
open.spotify.com/episode/3an6...
HR hlaðvarpið er rödd Háskólans í Reykjavík og mikilvægur hluti af vísindamiðlun háskólans til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. HR hlaðvarpið er að finna á Spotify, Apple iTunes og Podcasts og í öllum helstu streymisveitum hlaðvarpa.
Háskólinn í Reykjavík leitar að sterkum verkefnastjóra í blandað hlutverk kerfisgreinanda (Systems Analyst) og kerfiseiganda (Product Owner). Viðkomandi verður lykilpersóna í samstarfi við lítið en kraftmikið teymi þróara sem vinna að framþróun kerfisumhverfis HR.
jobs.50skills.com/ru/is/24353
Dr. Ronald Hanson, prófessor við QuTech-rannsóknastofnun Delft University of Technology í Hollandi, hélt fyrir skemmstu fyrirlestur um skammtafræði í Háskólanum í Reykjavík á vegum verkfræðideildar í tilefni af 25 ára afmæli háskólans árið 2023.
open.spotify.com/episode/3kai...
Dr. Ármann Gylfason, nýr deildarforseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, er viðmælandi Verkfræðivarpsins að þessu sinni. Í viðtalinu segir hann frá sjálfum sér, kennslunni og rannsóknunum við HR og hvernig allt þetta tvinnast saman.
SPOTIFY
open.spotify.com/episode/1xGp...
Dr. Hugh Fullagar hefur tekið til starfa sem prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hugh er reynslumikill kennari og vísindamaður, ásamt því að vera eftirsóttur fyrirlesari í faginu og unnið með liðum í NCAA, NFL, NBA og Hollandi.
ru.is/frettir/dr-h...
Rætt við Stefán Ólafsson, lektor við tölvunarfræðideild og rannsakanda við gervigreindarsetur HR. Sérsvið Stefáns er máltækni en hann er með doktorsgráðu í heilbrigðisupplýsingatækni, meistaragráðu í máltækni og BA-gráðu í enskum og kínverskum fræðum.
open.spotify.com/episode/0XH1...
"Er virkilega nauðsynlegt að kostnaðarframúrkeyrsla líkist náttúrulögmáli við opinberar framkvæmdir? Hvernig snéru Norðmenn dæminu um kostnaðarframúrkeyrslu við? Hvað hefur Bent Flyvbjerg til málanna að leggja?" spyrja stjórnendur Verkfræðivarpsins á Spotify.
open.spotify.com/episode/09Sj...
Árlegur hápunktur Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins, var Bleiki dagurinn, sem haldinn var hátíðlegur um land allt föstudaginn 20. október. Starfsfólk og nemendur HR tóku þátt.
#bleikaslaufan #bleikidagurinn #pinkribbon #pinkday
Gestur Íþróttarabbs HR að þessu sinni er Chris Harwood, sem er í fremstu röð á heimsvísu meðal fræðifólks í íþróttasálfræði. Chris þróaði 5C aðferðafræðina.
open.spotify.com/episode/375s...
Er heimurinn að verða VUCA? Afhverju er áhættustjórnun að verða ein mikilvægasta greinin innan hugmyndafræði stjórnunar? VUCA er skammstöfun sem lýsir heimi sem er hverfull (volatile), óviss (uncertain), flókinn (complex) og margræður (ambiguous).
open.spotify.com/episode/7rk7...
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands leita að sameiginlegum verkefnastjóra til að starfa í 5 mánuði í 30% starfi fyrir Háskóladaginn 2. mars 2024.
jobs.50skills.com/ru/is/23632/
Gestir HR hlaðvarpsins að þessu sinni eru Hannes Högni Vilhjálmsson og og Páll Jakob Líndal. Umræðuefnið er nýtt þverfaglegt diplómanám við HR í umhverfissálfræði og þrívíddartækni. Það er Stefán Hrafn Hagalín hjá samskiptateymi HR, sem ræðir við þá.
open.spotify.com/episode/20N8...
Gestur Sprotasólarinnar er Gísli Ragnar Guðmundsson, nýsköpunarsérfræðingur hjá Ríkiskaupum. HR og Ríkiskaup gerðu nýverið með sér samstarfssamning sem miðar að því að tengja nemendur við opinbera aðila gegnum ýmis verkefni. Gagnaþon Ríkiskaupa verður um miðjan okt.
open.spotify.com/episode/5Y77...
Í 7. þætti Verkfræðivarpsins er sagt frá hvernig að kennsla í verkfræði og fleiri greinum mun taka stakkaskiptum með tilkomu gervigreindar. Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson.
open.spotify.com/episode/3H41...
Anna K. Liebel kennir námskeiðið "Diversity, Equity and Inclusion", sem hefst 13. nóvember hjá Opna háskólanum í HR; námskeið sem er hægt að útleggja sem "Fjölbreytni, jöfnuð og inngildingu". Anna vinnur jafnframt að framleiðslu stafræns námskeiðs um sama efni með skólanum.
oh.ru.is/namskeid/div...
Gestir Íþróttarabbs HR að þessu sinni eru prófessorarnir Daniel Gould og Robert Weinberg, sem eru heimsþekktir í bransanum og taldir meðal virtustu sérfræðinga allra tíma á sviði íþróttasálfræði. Það er Peter O'Donoghue, prófessor við HR, sem spjallar við þá!
open.spotify.com/episode/1TFo...
Húsfyllir var á Vísindavöku 2023 í Laugardalshöll hinn 30. sept. HR mætti eins og alltaf með fjölbreytt atriði og kynningarbása, sem áttu margvíslegt erindi við almenning. Lögð var áhersla á atriði, sem höfða til yngstu kynslóðarinnar, þannig að nóg var að gera á öllum básum!
Nú hefur verið sett upp sérstök lendingarsíða á Spotify fyrir hið stórvirka Íþróttarabb HR, sem er sjálfstæð þáttasyrpa innan hlaðvarpsfjölskyldu Háskólans í Reykjavík. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu.
open.spotify.com/show/7oUCh3k...
Starfsfólk Háskólans í Reykjavík er nú í óða önn að undirbúa þátttöku í Vísindavöku, sem haldin verður í Laugardalshöll núna á laugardaginn kemur, 30. september, frá kl. 13-18. Vísindavaka er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
NÁNAR:
www.visindavaka.is
25. sept munu Ari Arnbjörnsson og Ægir Þorsteinsson setjast niður í stofu V102 í HR kl. 16:00 og tala um starfsframa sína eftir útskrift frá HR og svara spurningum áhorfenda. Ari er Unreal Engine Evangelist hjá Epic Games. Ægir er framkvæmdastjóri Aranja og CPO hjá Hopp.
www.ru.is/haskolinn/vi...
HR óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í launavinnslu og frágang launa. Launafulltrúi veitir ráðgjöf, er í góðum samskiptum við starfsfólk og stjórnendur í HR og vinnur náið með sérfræðingum á fjármála- og mannauðssviði.
jobs.50skills.com/ru/is/23520
Alþjóðadagur HR var haldinn 8. september. Viðburðurinn er haldinn á hverri önn til þess að kynna alþjóðleg tækifæri fyrir nemendur HR. Þar má nefna skiptinám, styrki og framhaldsnám erlendis. Sendiráð veittu upplýsingar, tækifæri gáfust til að smakka framandi mat og í lokin kenndu Spánverjar salsa!