Advertisement · 728 × 90

Posts by Þórarinn Stefánsson

Speaking of Icelandic and English titles, is there anywhere a list of your books showing translated titles to help map the original title to the books you mention here?

15 hours ago 0 0 2 0

OK, er að volgna við leit að „Austurbakki“.

1 day ago 0 0 0 0

Smá tís; um helgina ávann ég mér titilinn „Bjargvættur undirdjúpanna“ í umræddum kjallara.

1 day ago 3 0 0 0

Smá rannsóknarspurning; hvar finn ég grunnteikningar af bílakjallaranum undir Hafnartorgi? Má gjarnan ná yfir kjallarann undir Hörpu líka. Ég veit ekki hvaða leitarskilyrði ég á að nota á teikningavef borgarinnar til að finna þetta. #biturUXReynsla

1 day ago 1 0 2 0
Tvö hopphjól í því sem mætti kalla náinni stellingu.

Tvö hopphjól í því sem mætti kalla náinni stellingu.

Náttúran kviknar með vorinu.

4 days ago 4 0 0 0

Megi öll finna sömu orku inn í vinnudaginn og maðurinn sem ég mætti á Austurvelli, öskursyngjandi með head-fónunum sínum kl. 8:41 að morgni.

– Fornt kínverskt máltæki.

5 days ago 10 1 0 0

Mér finnst að orðið flippkisi eigi skilið meiri notkun.

T.d. „Þessi flugmaður sem drundi í Vestmannaeyjum er nú meiri flippkisinn!“

Sbr. timarit.is?q=flippkisi

1 week ago 1 0 1 0

Bingó!

1 week ago 0 0 0 0
Advertisement

Ég veit ekki mikið um anatomíu borga, en með smá hroka gæti ég kallað þetta nýrnasvæðið...

1 week ago 2 0 0 0

3,0 km frá.

1 week ago 0 0 0 0

Þú ert 4,2 km frá réttu svari (í loftlínu).

1 week ago 2 0 0 0
Skjáskot af textanum "Rótgróinn staður í hjarta Reykjavíkur"

Skjáskot af textanum "Rótgróinn staður í hjarta Reykjavíkur"

Einhverjar ágiskanir um það hvert er heimilisfang þessa rótgróna staðar í hjarta Reykjavíkur?

1 week ago 1 0 5 0

Allt sem ekki er beinlínis auglýsing endar á `Join` eða `Follow`.

1 week ago 7 0 0 0

Skemmtilegt að ég er að taka eftir því að aðal-tímalínan mín á FB er núna nákvæmlega 0,00% fólk sem ég þekki eða grúppur sem ég tilheyri.

1 week ago 7 0 1 0
Maður bendir í átt að sjónvarpstæki.

Maður bendir í átt að sjónvarpstæki.

Það hefur gerst oftar en einu sinni að ég er að horfa á þátt á RÚV og hugsa skyndilega; ég held ég viti hver þýddi þennan þátt! Og í öll skiptin hefur það passað að í lok þáttar birtist: „Þýðandi: Sigurður H. Pálsson“, nú síðast í gærkvöldi.

1 week ago 5 0 0 0

Sem er í raun hálf-vandræðalegt, því talan 2,54 er ein af fáum sem ég man alltaf utanbókar.

2 weeks ago 3 0 0 0
Advertisement

Ég var að nota Google sem reiknivél fyrir umreikning frá tommum í sentimetra.

2 weeks ago 2 0 2 0
Skjáskot af niðurstöðuskjá Google leitar, þar sem dregnar eru fram spurningar „fólks“ um það hvort 7 tommur séu 20 cm, hvort 8 tommur séu 10 cm og hvort 6 tommur séu 12 cm.

Skjáskot af niðurstöðuskjá Google leitar, þar sem dregnar eru fram spurningar „fólks“ um það hvort 7 tommur séu 20 cm, hvort 8 tommur séu 10 cm og hvort 6 tommur séu 12 cm.

Þessi listi spurninga vekur hjá mér spurningar um innbyrðis samræmi…

2 weeks ago 5 0 1 0

Örugglega minni, en merkjanlegar, í Vesturbæ Rvk.

2 weeks ago 0 0 1 0

Hér varð skýr vorboði í dag þegar „Nakti nágranninn“ birtist í fyrsta sinn á árinu ber að ofan (að minnsta kosti *) og sat á svölunum sínum í rúman hálftíma að njóta sólar.

*) Steypt svalahandrið og það að viðkomandi er ekki hávaxinn gerir að verkum að það sést aldrei neðan mittis á honum…

2 weeks ago 6 0 0 0

Næstu vísbendingar fundust svo í heimalestrar-hefti og undir taflborði.

2 weeks ago 2 0 0 0

Fyrsta vísbending til þess yngri: "Hin hversdagslega pynting Matthíasar." Stóri bróðir fékk "Vígvöllur þar sem riddarar og drottningar deyja." - Létt dramatík hjá báðum.

2 weeks ago 3 0 1 0

Ratleik að földum páskaeggjum hefur undanfarið verið úthýst til bræðranna sem semja vísbendingar hvor fyrir annan. Lestur og leit eru núna nýhafin.

2 weeks ago 3 0 1 0
Advertisement

Brotið traust

3 weeks ago 2 0 0 0

Ef vinurinn er mjög viðkvæmur fyrir þessu hugtaki getur hann skilgreint sig sem snemm-miðaldara meðan hann venst tilhugsuninni og safnar fleiri árum undir belti.

3 weeks ago 4 0 0 0

This. I'm firmly in the space team, the other just looks wrong. Personally, I do prefer en-dashes so I perhaps do not have a vote in the matter.

3 weeks ago 0 0 0 0

„Þú býrð ekki til omelettu án þess að brjóta kampavínsglas.“ – ég rétt í þessu.

3 weeks ago 1 0 0 0

Fyrstu rannsóknir snooring ferlisins benda á hdmi-switchinn sem líklegt vandamál, en hversu mikið er ekki fullkannað.

3 weeks ago 1 0 1 0

Þótt ég skilji alveg rökin fyrir því að hafa ekki bílaverkstæði inni í íbúðarhverfum þá eru samt ótrúleg lífsgæði í því að geta skotist innan hverfis með bíl sem gefur frá sér skrýtin hljóð, en náð samt að ganga í vinnuna á nokkurn vegin réttum tíma. Tala nú ekki um ef málið er leyst á klukkutíma.

3 weeks ago 5 0 1 0
Bunki af svörtum HDMI snúrum liggjandi á borði.

Bunki af svörtum HDMI snúrum liggjandi á borði.

Let the snooring begin...

4 weeks ago 3 0 0 0
Advertisement