Ég reyni mjög mikið að koma línunni "þegar ég prjónaði peysu handa Zelensky...." inní sem flest samtöl sem ég á
Posts by Salka Sól
Allur ágóði rennur í neyðarsöfnun til íbúa á Gaza. Verður þú þar verð ég þar ?
Gleymist kannski í þessari umræðu um Dimmalimm að sagan af Dimmalimm er bara frekar shitty saga..
Í dag kl 17:00
Fara ekki spreng södd á sýningu, einum drykk of mikið, alveg í spreng eftir drykkinn með matnum, beint heim eftir show til að leysa barnapössunina...
Mig langar svo miiiiikið að Íslendingar fari að fatta hvað það er næs að fara í leikhús kl 17 og fara svo út að borða, ræða sýninguna og vera komin á góðum tíma heim!!
Væri hægt að byrja vínrækt í Kömbunum og framleiða Kambavín..
Þori að fullyrða að þetta er fyrsta rapp versið á íslensku sem fjallar um fæðingarþunglyndi. Ný plata frá Úlle Úlle komin á spotify ❤️❤️❤️
open.spotify.com/track/7hqCND...
Það að fólk segist upplifa mammviskubit og noti orðið fokk fer greinilega mjög fyrir brjóstið á litlu köllunum.
Fokk Timberlake
Það var stór stund í mínu lífi um helgina þar sem sminkan sem var að farða mig tók af mér mitt fyrsta búkonu hár af bringunni
Ég er ennþá með gæsahúð eftir daginn og að horfa á myndina um kvennaframboðið viðheldur gæsahúðinni vel
Ég var oft búin að hugsa um að gera boringgylfisig aðgang til að geta aðeins leyst úr læðingi en hér finnst mér ég geta það bara...
Er þriðja vaktin og mammviskubit ekki nátengt? Fá pabbar mammviskubit? Vænt, en er það þriðja vatkin að það sé ekki til orð sem heitir pabbviskubit?
Danskur kærasti vinkonu minnar sagði að Íslendingar setji bara Mexico í nafnið til að gera mat girnilegan..Mexico ostur, Mexico Lime kristall...ég held að hann sé on to something
Ætli sérhagsmunaseggurinn sé með einhverjar innherja upplýsingar? Er að koma hrun?
Mæli með Þetta helst umfjöllun í síðustu viku um tæknifrjóvgun. Pælið í því að samkynja pör þurfa að borga 175.000 í millimakagjöld hjá þeim. MILLIMAKAGJÖlD! Það er sem sagt dýrara fyrir lesbíur að eignast barn en gagnkynja pör samt redda þær sæðinu
Síðasti Serrano bitinn er svo vandræðalegur
Ég kann sænsku en eftir tvo bjóra verð ég mjög góð í dönsku
Hérna er samt miðasalan í Bæjarbíói svo þú þurfir ekki að fara til Selfoss!
tix.is/is/event/154...
🤌 mad skills 🤌
Að því sögðu ætlum við að sýna tvær sýningar í viðbót. ALLRA ALLRA síðustu sýningar. Hvet karla sérstaklega til að koma í þetta sinn. Miðasala á tix.is
Hef fengið spurningar um versið mitt í laginu Falafel þar sem ég segi gaurum að lesa sig til. Hér er allavega hægt að lesa sér til um það sem ég er að tala um
www.visindavefur.is/svar.php?id=...
Vöðvabúnt að spúðrla hatri í story og skella svo Stöndum saman gegn hatri frá #hinseginnleikinn 🥴
Nú eru öll á facebook orðin sérfræðingar í kynfræðslu og svo frábærir foreldrar að börnin þeirra munu aldrei sjá klám fyrr en þau eru 18 ára
Ættum að hætta með kynfræðslu og byrja að kenna axarkast í staðin
Ég að horfa á auglýsingu (eins og t.d áðan Boli og Bulls eye) og bara gaurar í auglýsingunni. Instant hate langar ekki að versla við þig. Alltaf með bechdel gleraugun uppi
En svo var það reggí gítarleikarinn sem var rekinn úr hljómsveitinni hann spilaði bara annað slagið nei ég er djóka
❤💛💚
Hef sko heyrt það í alvöru en samt sorry með mig. Þetta er bara svo öruggt umhverfi hérna, kæri vinur kæra vinkona dæmi.
Ég get ekki hlustað á The Police ég fæ svo mikinn Sting í eyrun ÉG ER AÐ GRÍNAST Í YKKUR