Fara í Vesturbæjarlaug og sjá typpið á einhverjum Vesturport leikara og kveikja svo á rúv og sjá sama typpi þetta er ekki eitthvað sem AI getur leikið eftir.
Posts by Bragstofa Íslands
Já carpet og parket. Það eru orðin tvö.
Ég í Herragarðinum með Húgó Boss bol: fyrirgefðu, áttu þennan nokkuð í Húgó millistjórnanda?
Ö-in þrjú.
2026 erfitt fyrir okkur Kleina og Rex Heuerman menn.
Gangið hratt á gleðinnar hurð.
Betra að verða fyrir áfalli í Bláfjalli en áföllum í Bláfjöllum.
Eggvopnið.
Season some er gott fyrir fólk sem finnst season all of sterkt.
Chair b n b fyrir fólk sem vill leigja stólinn sinn fyrir næs pening.
Sem fann upp Facebook humarinn?
Fara inn að sitja > fara út að hlaupa
Faðir vorið > faðir haustið.
Það er ekkert i í lið.
80% af hugmyndum hverfa út í gegnum höfuðið og þess vegna geng ég alltaf með húfu.
Bubbi “Danska konan” Morthens.
Ætlaði að gera truflumæjó með kvöldmatnum en fékk engan frið.
Price Waterhouse Pooper.
Baltasar Kormákur og bróðir hans Baltasar Þorlákur.
Ef kotasælan þín er ekki frá Kotas er hún bara venjulega æla.
Frá framleiðendum friðarkerta koma böggkerti. Ert þú eða frændi þinn að leita að böggi þá eru böggkertin eitthvað fyrir ykkur.
Með vaxandi áherslu á inklúsjón má alveg kýla menn með gleraugu.
Salvador Dalvík.
Rabarbara Rúna og dóttir hennar Rabarbara Barbara.
Hárgreiðslustofan Móses ehf.
Reykjavík
Hæ ég er ⅃⅃ÍꓭAЯꓘÚႱƧ 🚑
Litháen og nágrannarnir í Svarthvítháen.