Advertisement · 728 × 90

Posts by ástríður pétursdóttir

GÓÐ FRÉTT! EIN GÓÐ FRÉTT!
bara þrjár sprengingar í svíþjóð í febrúar

1 year ago 1 0 0 0

já ég sagði aldrei að þessi atburðarás hefði ekki verið eftirsóknarverð

1 year ago 4 0 0 0

Ég er sjálf utan að landi og notaði innanlandsflug mikið sem barn/unglingur til að flakka á milli foreldra minna. Ég er líka læknir og ber virðingu fyrir sjúkrafluginu. Skil þessi sjónarmið en það er ekki samt ekki forsvaranlegt að hafa flugrekstur á besta byggingarlandi í Reykjavík.

1 year ago 4 0 0 0

þau verða hvortsemer bráðum ekki með kosningarétt í Reykjavík

1 year ago 2 0 0 0

Ef Guðni hefði viljað vera áfram forseti

hefði Katrín ekki farið í framboð

ríkisstjórnin hefði ekki fallið

engar kosningar

Dagur hefði ekki farið á þing

meirihlutinn í borginni væri ekki fallinn

og það væri bara ekkert að frétta á Íslandi

1 year ago 43 5 2 0

Er einhver manneskja með kosningarétt í Reykjavík sem vill flugvöllinn EKKI úr Vatnsmýri?

1 year ago 18 0 4 0

Búin að gefa Komið gott heiðarlegan séns, búin að hlusta á 6 þætti. Finn bara heilann minn minnka. Af hverju finnst öllum þetta æðislegt?

1 year ago 3 0 0 0

Nútímasamfélag fælir fólk frá því að mennta sig í menntunar-, heilbrigðis- og umönnunarstörfum.

Það er bara best að taka þátt í kapítalíska hagkerfinu og reyna að ná á 40 undir 40 listann. Fá árshátíð í útlöndum og 66 norður úlpu í jólagjöf.

1 year ago 20 2 0 0

😂

1 year ago 0 0 0 0

þá myndi ekkert virka heima hjá mér😅

1 year ago 3 0 1 0
Advertisement

Er til stuðningshópur fyrir maka þeirra sem elska Snjallheimilið?

1 year ago 9 0 2 0

já það er rétt, það var í öðrum umræðum í dag sem talað var um 3%. Það var sú tala samt sem ég vitna í, í samhengi við sænsku barnabæturnar. Beint uppúr sænsku sjónvarpsfréttunum í kvöld.

Leiðréttist hér með

1 year ago 0 0 0 0

Heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir hermönnum, verkfræðingar sem hanna byssukúlur til að valda sem mestum skaða, allt fólkið sem velur að helga líf sitt herstörfum.

Trump vill að NATO ríki verji 3% af BNP í varnarmál. Þá þyrfti Svíþjóð að auka framlög um því sem nemur öllum barnabótum landsins á ári

1 year ago 2 0 1 0

Þessa vikuna hef ég verið á námskeiði í stríðsáverkafræði - meðhöndlun helstu áverka í stríði og með takmarkaðan aðgang að lyfjum og tækjabúnaði. Ekki að eigin frumkvæði nb.

Pælið í því ef öll þessi orka og fjármunir í heiminum, sem fer í að taka þátt í ofbeldi, væri notuð í eitthvað annað?

1 year ago 18 1 1 0

Að fara með 2ja ára út á snjósleða

50% plís viltu fara í útifötin
20% plís ekki borða skítugan snjó
10% plís ekki sleikja götuna
10% getum við bara labbað áfram?
8% ji hvað ég á krúttlegt barn
2% jei gaman að renna

1 year ago 15 0 2 0

alltaf þegar ég er lasin

mamma: heldurðu að þú sért nokkuð að fá heilablóðfall?

ég: nei ég er ekki að fá heilablóðfall

mamma: viltu ekki bara fara til læknis?

ég: mamma ég er 35 ára. og ég er læknir.

1 year ago 20 0 1 0

já heldur betur, reyktur silungur veiddur af pabba mínum í Mývatnssveit og sendur hingað til mín í Svíþjóð🥰

1 year ago 2 0 0 0

þessi terta heitir Dísudraumur, engar perur í henni en mjög svipuð perutertu samt. Svampbotn, rjómi, súkkulaðirjómakrem, margengsbotn, rjómi, súkkulaðirjómakrem og svo rjómi allt í kring👌

1 year ago 1 0 0 0
Post image

Laufabrauðsgerð kalla á góðar veitingar. Í ár var þemað Suður-Þingeyjarsýsla 1968💥

1 year ago 15 0 2 0
Post image Post image Post image

Sagði einhver kleinur?😻

1 year ago 8 0 1 0
Advertisement
Post image

Ég fer alltaf yfirum jólin

Nýjar gardínur, nýjar sardínur

1 year ago 3 0 0 0

Alltaf gaman að byrja daginn á því að sjokkera miðaldra karlmenn með því að það sé litla ég sem ætlar að gera skurðaðgerðina þeirra.

Är det DU som ska operera mig? FY TUSAN!

1 year ago 9 0 0 0


Á jóladag í ár, mín fimmtu jól í Svíþjóð, verða skonsur með hangikjöti, hangikjötssalat og tartalettur með hangikjöti, uppstúf og grænum baunum. Skonsubrauðterta með skinkusalati og rúgbrauð með reyktum silungi.

Á annan í jólum verður lambahryggur frá Mývatnssveit👑

1 year ago 7 0 0 0

Einu sinni var ég nýflutt til útlanda og þurfti sko ekkert frá Íslandi til að halda jól.

Jóladagur í fyrra var helgaður sænskum jólamat - kjötbollur, síld, graflax, pylsur og allar gerðir af unnu svínakjöti, hrökkbrauð með smjöri og engin sósa. Núna er það búið og ég þarf aldrei að gera það aftur.

1 year ago 7 0 2 0

Getum við ekki bannað fjölmiðla hérna á Skýinu?

Amk hópblokk á Mannlíf ef þau fara að púlla fréttastofu RÚV takk

1 year ago 6 1 1 1

Nei þú mátt ekki horfa á Hvolpasveit af því það er svo mikið áreiti og þú lærir ekkert á því

Grétu Grís? Nei það eru svo miklir fitufordómar

sagði hún, svæfði barnið og kveikti svo á Paradise hotel

1 year ago 7 0 1 0

Ég held að Inga sé best geymd í forsætisráðuneytinu, góð stemmningsmanneskja þar.

Kristrún fjármálaráðherra

Togga utanríkisráðherra

Jóhann Páll dómsmálaráðherra

Alma heilbrigðisráðherra

Obba innviðaráðherra

Ragnar Þór félagsmálaráðherra

Logi umhverfisráðherra

Lásuð það fyrst hér

1 year ago 1 0 0 0
Post image

Ef ykkur vantar kjörnun á aðventunni mæli ég með jólakortaskrifum

1 year ago 1 0 0 0

Ég skipti alltaf ósjálfrátt yfir í unglingamataræði á næturvöktum

Billys örbylgjupizza í kvöldmat á vaktinni, nammi í desert

Vakna svo um tvöleytið eftir hádegi og skelli tveimur brauðsneiðum með osti og seasonall í örbylgjuofninn

1 year ago 6 0 0 0
Advertisement

Ég vona bara að ekkert embætti heiti matvælaráðherra í næstu ríkisstjórn. Matvæli er svo ógeðslegt orð

1 year ago 0 0 2 0