TACO! 😄
Posts by Ágústa
Fjarlægðir til og frá Reykjavík eru svo afstæðar. Stundum er allt landið pínupons, og það er höfuðborgarbúum alltaf jafn mikið undrunarefni að veðrið sé öðruvísi hinu megin við hálendið. En vegalengdirnar verða hins vegar nær óyfirstíganlega langar þegar þeir þurfa að fara norður fyrir Höfðabakka.
Hvít kisa með þrílitt höfuð liggur seinsofandi í fanginu á manneskju í bláum buxum.
Smákaka er sybbin og ég get vaskað upp á morgun.
Hér eru páskar með súkkulaði og sjónvarpsglápi, fótbolta. Samningaviðræður áttu sér stað hvort ætti að halda með hvítum eða bláum. Niðurstaðan var hvítur. Svo hvíslaði sá yngri að pabba sínum: “Ekki segja en ég held með bláum”.
Þessi drengur á eftir að komast langt.
me: why does no one take my threats seriously?
my threats:
Læknirinn vill ekki gera aðra beiðni?! 😡Wtf? Segðu honum að þú viljir að það komi fram í sjúkraskýrslunni þinni að þú hafir beðið um frekari skoðun og að hann hafi neitað. Og athugaðu hvort þú getir ekki fengið annan lækni (gæti borgað sig að fara á læknavaktina).
Ertu líka þreytt? Ef já, þá já, líklegast.
Sko … ég keypti aðeins meira en mjólk og brauð … that was the joke 🙈
Bónuskvittun. Heildarupphæð 27.002 krónur.
Hann: það vantar mjólk og brauð, ekkert annað. Viltu fara út í búð?
Ég, mætt í Bónus: Hmm, það er nú eitt og annað sem væri nice to have.
Kvittun: kr. 27.002.- takk
Fyrir utan það, að lífstílsbreyting (sem er alls ekki alltaf geranleg fyrir alla) er tímafrek, dýr, skilar ekki árangri undir eins og skilar oft takmörkuðum árangri þegar hún virkar yfir höfuð.
Hrmpf
Man pælir ekki í soleiðis, Már! 🤮
Úúú! Og hvernig munu súperleynileg áform ykkar um að ráðast inn í Taiwan hafa áhrif á það hvernig þú tæklar fundinn og hvað þú ætlar að laumupokast með Rússum?
Sjal?
Þetta hljómar eins og djók. Hefur einhverjum blaðamanni dottið í hug að spurja þau hver er munurinn á þessu tvennu, fyrir utan hástafinn?
Eldri drengurinn byrjaði upp úr eins manns hljóði að kyrja: “Riiiiiice crispies, I gave you my heart, and the very next day…” og ég er svo confused.
Enginn:
Fjögurra ára guttinn, að smyrja þriðju nutella samlokuna sína: “Ég borða mjög hollan mat”
Ég: *hósthósthóst*
Sex ára guttinn: “Ætlarðu að segja pabba þennan?!” 🤪
Já… líka…
Hún Smákaka kann’etta sko!
Hvítur köttur með svartan og gulan haus og skott liggur á bakinu í hvítu baðkari og snyrtir á sér mallann.
Langar ykkur ekki að sjá kött í baði? Auðvitað langar ykkur til þess, hvernig spyr ég.
Þúst - ég var á fundi og var með kollinn fullan af evrópugerðum í orkumálum. Það er ekki hægt að poppa upp randomlí með óþekkt númer og óþekkta rödd og kalla mig mömmu, rétt si svona. 🤷♀️
En veslings barnið, auk þess að vera veikt í skólanum var því afneitað af móður sinni 😭
Mér til varnar hef ég aldrei fengið símtal frá þessu númeri (ritarinn í skólanum), aldrei talað við drenginn í síma áður(!) og gerði mér ekki grein fyrir því að ef börn yrðu veik í skólanum væru þau sjálf látin hringja heim. 🤷♀️
Óþekkt númer hringdi í mig í vinnunni í gær. Mamma, sagði mjóróma rödd, mér er illt.. Handviss sagði ég: Ég held að þú hafir hringt í vitlaust númer. Nei, volaði röddin. Ég: Hvað heitir þú? Og þá gaf sonur minn upp fullt nafn, því eðlilega var hann ekki viss hvort ég ætti marga syni með sama nafni.
Og sko. Þetta hentar svoleiðis fólki ágætlega. Og þeim sem eru nógu efnuð til að greiða fullt gjald - þar kemur jafnvel betri þjónusta til að auki þar sem leikskólinn er rólegri seinnipartinn þegar pöpullinn er farinn - en það var dagljóst frá upphafi hvernig þetta myndi fara.
Þú meinar í eyrunum?!?
4ára guttinn: “Af hverju er valhopp kjánalegasta hopp í heiminum?” Ég: “ég veit það ekki, af hverju ER valhopp kjánalegasta hopp í heiminum?” Guttinn horfði á mig um stund, fetti upp á nefið og sagði svo með áherslu: “*Þú* veist það”. Lesandi, ég veit það ekki.
Enn heima með veikt barn. Við erum að lita. Hann: hvernig á kjóllinn að vera á litinn? Þú mátt velja bleikan eða fjólubláan. Ég: Fjólubláann. Hann: Nei! Veldu eitthvað FLOTT!
Ég óttast að sú verði krafan, já.
Það er ekki alveg ljóst, menn voru að enda við að klára hann (takmörkuð matarlyst, jú sí). En hann hefur ekki skilað sér enn 🤞🙏