Advertisement · 728 × 90

Posts by Þórdís Gísladóttir

Ást og friður er passív agressívasta kveðjan.

3 days ago 3 0 1 0

Almennt tel ég mig ná ágætu sambandi við samborgarana en ég mun aldrei skilja fólk sem borgar fyrir langlokuþarmakíttið með osti og skinku sem er selt í flugvélum Icelandair. Heimurinn er fullur af góðum samlokum.

3 days ago 7 0 0 1

Einmitt!

4 days ago 1 0 0 0

Ég sé ekki muninn.

4 days ago 1 0 1 0

Ég er hér mánaðarlega bara til að fá ekki fjörefnaskort.

4 days ago 4 0 1 0

Já, held það.

4 days ago 0 0 0 0

Njiii, búin að reyna. Kann ekki að meta.

5 days ago 1 0 0 0

Sko nenni hvorki morðum né draugum.

5 days ago 0 0 1 0
Advertisement

Væri reyndar til í að hlusta á samtal fólks, sem er eldra en fimmtugt, um nikótínfíkn.

5 days ago 8 0 0 0

Hlaðvörp á íslensku sem ég get hlustað a fyrir utan RÚV? Ekki með eintómum körlum og ekki samtal um fíkn eða fólk að opna sig um kvíða og persónuleg vandamál. Ég er líklega að biðja um einhvers konar dagskrárgerð.

5 days ago 11 0 10 0

Bjargaði mér, með smábörn, alveg að hafa jólin til að lesa fyrir prófin.

6 days ago 2 0 0 0

Og prófin voru eftir jól.

6 days ago 2 0 1 0

Seisejá

1 week ago 1 0 0 0
Preview
Leita - Tímarit.is Tímarit.is er stafrænt safn sem veitir aðgang að milljónum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Ísland...

Ég kemst ekki inn á timarit.is í útlöndum því það þarf að leysa svo flóknar þrautir til að sanna að ég sé ekki vélmenni. Er búin að reyna mörgum sinnum en get þetta ekki.

1 week ago 3 0 1 0

Og síld og rúgbrauð til hátíðabrigða.

1 week ago 3 0 0 0

Það á bara að hafa grænmetisbar og hrökkbrauð í skólamat.

1 week ago 1 0 1 0
Advertisement

Naunau, þú líka í København!

1 week ago 0 0 1 0

Er að fara á morgun.

1 week ago 6 0 0 0

Ljótasta kápa sem ég hef séð.

1 week ago 4 0 1 0

Æ, greyið, alveg einnar mínútu gönguferð?

1 week ago 3 0 0 0

Nei, Hjörvar!

1 week ago 0 0 1 0

Get ég afpantað flug og fengið endurgreitt því ég er of stressuð yfir að farið verði í lágflug yfir einhverju sjávarplássi?

1 week ago 10 0 0 0

Hvernig sumt fólk tjáir sig eftir andlát frægs fólks endurspeglar svo botnlausa sjálfhverfu og virðingarleysi við aðstandendur.

1 week ago 1 0 0 0

Nei, þá verður þú orðin jafn fín með þig og ég og nennir ekki hörðum rúmfletum í kompum í afskekktum residensíum fullum af músaskít og mýflugum.

2 weeks ago 1 0 1 0

Það eru þrumur og eldingar í miðborg Reykjavíkur.

2 weeks ago 9 0 2 0

Kannski ráð að hringja á einn af þessum leynivínsölum og panta nokkra kassa!

2 weeks ago 4 0 0 0
Advertisement

Samúð. En hljómar samt líka næs að eiga sambýlinga með Chablis. Það gleymdist að kaupa páskavín á mínu heimili svo við þurfum að drekka vatn eða edik með páskamatnum.

2 weeks ago 5 0 1 0
Post image
2 weeks ago 8 0 1 0

Er þetta tilviljun eða er alltaf svona mikið af fólki með fíkniefnastjarfa í Nettó í Mjódd?

2 weeks ago 6 0 0 0

Afsakið ömurlegt ekki-vandamál en getur Icelandair ekki verið með einhvern ódýran síðustu-mínútu-möguleika-takka ef fólk langar að fara bara í eitthvað random land þar sem eru útsprungnir túlipanar á morgun eða hinn og koma til baka um helgina?

3 weeks ago 15 0 1 0