Hann þarf að hitta manninn minn! Vorum í mjög stóru safni "út í rassgati" í Króatíu með fáum gestum og ég var að hugsa um háa standardinn þar.
Ég: This is amazing I wonder how they maintain it?
Hann: I guess they just wax it very regularly?
Hann var semsagt að hugsa um hvað gólfið glansaði mikið 😅
Posts by Tinna Eik
Samsett skjáskot úr the office (S4E9), tveir skjáir. Efri skjár: Jim og Pam, Pam segir: "So you have an office and a workspace?" Neðri skjár: Michael og Jan inn í kertaherberginu hennar Jan. Jan: "I do. You know, I cannot create in the same space that I conduct business. I'm sure that you're the same with your doodles."
Í dag er dagurinn sem ég varð miðaldra 😱 Sem forvörn skal ég lýsa ferlinu:
• Dáðist að stóru fallegu húsi
• Hugsa: „Hvað hef ég, barnlaus konan að gera við svona stórt hús?“
• Niðurstaða þankagangs: „Ég gæti verið með skrifstofu OG hobbyherbergi!“
Og áður en ég vissi af var ég orðin Jan Levinson 😓
Næs! ég líka 😃
Og góður undirbúningur fyrir nýju Harry Styles plötuna sem kemur 6. mars!!! 🤗
Ég þegar staðan var 🇲🇪MNE10-21🇫🇴FAO.
„Þetta er ástæðan fyrir að ég gæti aldrei verið íþróttamanneskja, ég væri bara búin að tékka mig út og farin heim“
Leikurinn endaði btw 🇲🇪MNE24-37🇫🇴FAO.
Greinin í upprunalega póstinum hljómar hins vegar svipuð umræðunni hér í Svíþjóð.
Þ.e. hún fókusar á hvað eigi að gera varðandi "svörtu sauðina" sem eru alltaf veikir í staðin fyrir hvað hið opinbera þurfi að gera til að bæta vinnustaðarmenningu og tryggja vellíðan fólks í starfi.
Mér finnst umræðan á Íslandi oftast vera nokkuð góð hvað þetta varðar. En mín tilfinning er að hún sé oftast á þeim nótum að vinnuveitendur séu að taka ábyrgð (mismikla að vísu) og líti í eigin barm varðandi hvað þeir geti gert til að hvetja starfsfólk til viðveru.
Hér hefur starfsfólk hins opinbera ríkan rétt til fjölda veikindadaga en fær samt tilfinnanlega lægri tekjur fyrir þá.
Þrátt fyrir að tekjuskerðing ætti að vera hvati til að "misnota ekki veikindarétt" þá er hlutfall veikindadaga samt hátt af því fólk er bara það úrvinda.
Mín tilfinning er að hátt hlutfall veikindadaga snúist mest um menningu á vinnustað og vanlíðan einstaklinga í starfi.
Í sveitarfélaginu sem ég bý í í 🇸🇪 er erfitt að misnota veikindarétt án tilfinnanlegra afleiðinga, samt er prósenta veikindadaga sumstaðar yfir 10%
www.visir.is/g/2026282594...
Skáskot af fjölskylduspjalli á messenger. Mamma: Mynd af hillu með kókosmjólkurdósum í búðinni Systir: Jújú þetta er kókosmjólk en ekki Piña Colada mix 😂😂
Búið að tryggja það að þrettándasúpan verði alla vega ekki gerð óæt á sama hátt og í fyrra 😅
Erling: "He looks like a cross between Michael Garlic and John Krasner"
Ég: 😐
Erling: "I mean Andrew Garfield and John Krasinski"
ADHD er helluva drug 🙃
Er í Svíþjóð og þetta eru fyrstu jólin sem ég er búsett erlendis og ég ákvað að fara heim.
Ég hef oft verið í Danmörku yfir jól (hjá fjölskyldu mannsins míns) og sakna þá bara fjölskyldunnar minnar en ekkert sérstaklega Íslands.
Leiðinlegt fyrir mig, búsett í Svíþjóð og gift færeyskum frænda mínum 😓
(ekki blóðtengdur reyndar)
Mynd af umræddri „salats“uppskrift, uppskriftin er á ljósappelsínugulu blaði og er vélrituð. Uppskrift GESTASALAT 2 pk. lime jello leystir upp í 1 bolla sjóðandi vatni. 1 bolli hrært skyr sett saman við þegar jellóið er farið að kólna. Þeytt í hrærivél í ca. 5 mín. 1 peli af rjóma er stífþeyttur 1 dós stappaður ananas (crushed pineapple) Ananasinum og rjómanum er bætt í og síðan er petta látið í fallega skál og geymt á köldum stað til næsta dags. Lilja Guðsteinsdóttir
Ég hef aldrei gerst svo fræg að fá einhvern svona hlaupmat borinn fyrir mig, fyrir utan sviðasultu kannski, en finnst þetta alltaf smá heillandi trend.
Ég erfði grænmetisætuuppskriftabók eftir langömmu mína og mig hefur alltaf smá klæjað í puttana að henda í þetta „salat“ með hlaupi
Mynd af 5 krukkum með kimchi í. Á myndinni stendur: „11klst og 30mín seinna = 4l af kimchi“
Það að gera alveg fáranlega gott kimchi fyrir nokkrum vikum síðan gerði alveg vandræðalega mikið fyrir sjálfstraustið mitt 🫣
Er í gelluferð til Köben og öll sem ég segi frá halda að það sé svaka djamm.
Við komum upp á hótel kl.21:50 í kvöld og önnur vinkona mín hélt þakklætisræðu á leiðinni upp í lyftunni sem endaði á: „Ég var bara mjög stressuð að þið væruð ekki til í að sofa eins mikið og ég“
Var einu sinni að vinna með einstaklingi sem var rétt að detta í sextugt. Þegar viðkomandi sagðist hafa verið í frá vinnu vegna jarðarfarar stórforeldris hélt ég að mér hefði misheyrst. Öll mín dóu áður en ég varð 30 😬
Skjáskot af stöðuuppfærslu frá Kringvarpi Føroya þar sem frétt um málið er hlekkjuð. Við fréttina er mynd af færeyskum femínistum. Tvær konur eru í forgrunni, önnur þurrkar tár og hin að bresta í grát. Í bakgrunni er kona með lítið barn í göngupoka sem hún bet framan á sér. Texti: 10:20 Uppskotsstillararnir og nógv av teimum, ið hava strøst fyri fríari fosturtøku í Føroyum í fleiri ár, vóru fegin og rørd, tá tað var greitt, at uppskotið var endaliga samtykt. Fyrirsögn fréttar: Uppskotsstillarar fegnir og rørdir: Hetta er stórt og søguligt
Skjáskot af athugasemdum við fréttina: Hallur Lisberg: Hvussu ber tað til, at fólk eru "rørd" yvir at drepa eitt komandi menniskja? Kann onkur forklára mær hettar, til ein 6 ara gamal drong, sum einki skilir... Kaj Olsen: @Hallur Lisberg, trupulleikin er, at tú ert ein 6 ára gamal drongur. Ikki ein genta/kvinna. Altso, hevur hetta einki við teg at gera. Tu kann liva víðari, akkurát sum vanligt.
Gaman að sjá samt hvað færeyskir femínistar eru skemmtilegir í tilsvörum til andstæðinga 💖
Skjáskot af Facebook stöðuuppfærslu: Jenis Kristjan Av Rana - 12h ago Jú ein myrkur dagur, men handan myrkrið og skýggini er Hann, sum hevur alt vald- og seinasta orðið! Vit skilja ikki, at til ber at gera seg inn á ófødda barniỗ í trygga staði tess í lívmóðrini- og at broyta hesa til ein vígvøll.
Skjáskot af athugasemdum við stöðuuppfærsluna frá Jenis: John Ildiko Johansen Frá hesum degi skalt tú vera sera vakandi, tí Gud fer ikki at tiga um hetta siðloysi. Eivinn Fródi Bringsberg Takk fyri góỗ orỗ Jenis ! Harrin signi tykkum øll sum stríddist til tað sísta fyri lítla verjuleysa barninum í tinginum† Guttorm Andreasen Eg betrakti barni sum ein gladiatorur í liggur niðrið í sandinum i Coloseum, har i keisarnir (tingfolk)venda tummilin niður i merkir drep tann í hevur tapt
Færeyski fréttaritari forritsins að tékka sig inn🕵️♀️ Í þetta skipti eru það viðbrögð Færeyinga við samþykki þungunarrofsfrumvarps sem náðu athygli minni 😬
Fyrir þau sem ekki muna er Jenis Av Rana sami maður og neitaði að sitja við hliðiná Jóhönnu um árið 🫠
Skjáskot úr Apple Music af lagi sem heitir „Jól (Syndafall og timburmenn)“ og er sungið af Kim Hansen
Færeyingar alltaf léttir í sinni jólastemmingu 😬
Eins og sést kannski á þessum þræði þá er ég mjög mikil matar-hyperfix kona. Finn einmitt mjög oft til með því sem mamma þurfti að ganga í gegnum þegar ég var að alast upp hvað það varðar 😬
Ég enda oft með hellings birgðir af einhverju af því ég missi lystina á því alveg ófarvarindis.
Mynd af réttinum hans Erlings. 2 sneiðar af nýbökuðu súrdeigsbrauði með káli, skinku og hleyptu eggi á hvorri sneið. Ofan á eggjunum er zik-zak af habanero salsa. Myndin er tekin úr Instagram story og á henni stendur "a la @esbern_erling 🤤"
Egg, kál, silkiskorið reykt kjúklingaálegg og habanero salsa - Brunch réttur sem Erling eldar allar helgar: Hleypt egg ofan á nýbakað súrdeigsbrauð 🙏
(Á myndinni er parmaskinka í staðin fyrir kjúklingaálegg)
Mynd af pastarétt. Farfalle, sveppir og spínat í creamy sósu.
Kjúklingalæri, farfalle/ravioli, sveppir, grænmetiskraftur, mjólk, Old Amsterdam, hvítlauksbrauð, kál og tómatar - Hráefni í go to pastaréttinn minn (sorry með farfalle-ið, 10. áratugur síðustu aldar eyðilagði pastapalletuna mína).
Mynd af gúrkusalati, gúrkusneiðar í brúnni, glærri sósu með sesamfræjum og chili flögum. Í forgrunni eru matarprjónar sem halda uppi nokkrum gúrkusneiðum.
3. Fiskisósa, sojasósa, vorlaukur, hvítlaukur, gúrka (mjög mikill gúrkufan) - Í gúrkusalat. Nota fleira í salatið en þetta eru þeir hlutir sem klárast oftast. Fæ mér mjög oft gúrkusalat on the side eða sem aðalrétt í girl-dinner.
Stock mynd af glasi með klakavatni. Það eru sítrónusneiðar í vatninu og það er sítrónubátur við hliðiná glasinu.
2. Sítrónur og sítrónusafi - Kreysti safann úr sítrónum út í klakavatn og sítrónusafinn er back-up í það sama. Drekk að jafnaði u.þ.b. 3l af þessari blöndu á dag 🫣
Mynd af morgunmatnum mínum. Finn Crisp með smurosti og gúrku og medium soðin egg skorin í báta. Eggin eru krydduð með salti og pipar og eru með pínu klípu af jalapeño smurosti.
Fyrir mig er það:
1. Finn Crisp, jalapeño smurostur, gúrka og egg - Morgunmaturinn minn og núverandi hyperfocus máltíð
Hverju tékkar þú alltaf á áður en þú kaupir í búðinni og í hvað notaru það?
Alveg með þér þarna! Búin að prufa alls konar en eitt sem ég hef komist að við það að vera "góð í flestu en ekki sérfræðingur í neinu" er að það sem skiptir höfuðmáli er að vinnustaðurinn og vinnuumhverfið henti mér, hver verkefnin nákvæmlega eru virðist ekki endilega skipta mig höfuðmáli.
Móðir mín (sem kallar N1 ennþá Esso): Hvað heitir listakonan aftur? Labrador?
Ég (komin með 40 ára reynslu af því að reyna að skilja hana): Ertu að meina @loaboratorium.bsky.social ?
Við erum víst öll alls konar 🥰
Ég finn fyrir stressi á Akureyri (heimabærinn) og finnst oft óþægilegt að vera í minni plássum af því ég þekki hvernig umtalið getur verið á þannig stöðum en ég finn fyrir kyrrð og ró á flestum stöðum í Reykjavík.