Það fáránlegasta við The Bear er að Carmen sé alltaf að mæta á Al Anon fundi og sé ennþá að öskra á alla í kringum sig og reyna að stjórna þeim.
Posts by Þorvaldur S. Helgason
Að sjá öll þessi brúðkaupsstory lætur mig bara hugsa um hversu mikið mig langar að gifta mig 😭
Er skrýtið að ég er strax farinn að hlakka til haustsins?
Árið er 2115: "Nei kæru barnabarnabörn, ég kynntist aldrei föður mínum. Hann dó við að gera það sem hann elskaði mest, ofurölvi með buxurnar á hælunum á FM95BLÖ tónleikum."
Þetta endalausa drama innan Sósíalistaflokksins er einhver epískasti farsi sem ég hef séð. Hefur einhverntíma áður í íslenskri stjórnmálasögu verið jafn mikið drama hjá flokki sem hefur jafn lítið vægi?
Haha þetta er svo funny! Ég hljóp 15 kílómetra í gær og fékk mér bara vel að drekka fyrir og eftir hlaup og nokkra sopa í vatnsbrunni á leiðinni. Ekkert vesen.
Mitt helsta pet peeve þessa dagana er fólk sem fer út að skokka 5 kílómetra klætt í hlaupavesti með 2 brúsa, gel og græjur eins og þau séu að fara í ultramaraþon.
Þetta er s.s. ekki steggjun, bara þannig væb. Gaurar að gera eitthvað saman í heilan dag 😃
Já gleymdi að taka fram, helst í kringum Vesturbæ/Miðbæ 😃
Hvað er skemmtilegt fyrir hóp af 33 ára mönnum að gera á laugardegi í maí? Væbið svona hversdagsleg steggjun, án toxic karlmennskunnar. 🌞
Næsta sería af The White Lotus gerist á Hótel Bjarkalundi.
Kaytranada er að spila í Köben 10 dögum eftir að ég verð þar 😐
Og guess what, ég er ennþá single! 😆😩
Fólk sem segir að maður eigi ekki að leita að sambandi heldur bara fókusa á sjálfan sig er full of shit! Núna er ég er búinn að fókusa á sjálfan mig í rúmt ár og það eina sem ég fékk út úr því er að ég er kominn í geggjað form, er ánægður með lífið og orðinn frekar góður söngvari. Whack! 😠
Hlutirnir sem ég myndi gera fyrir Pedro Pascal.
Smellugas er mest gay og slutty gasið. Ætla ekki að útskýra þetta nánar.
Ég verð 34 í ár. Eins gott að njóta þessara 3 ára sem ég á eftir þar til þetta fer allt niður á við 😢
Hugur minn í dag er hjá öllum fallegu konunum sem halda að lífið sé búið eftir þrítugt. ❤️
Fann fyrsta gráa bringuhárið um daginn. Má ég núna kalla mig daddy?
Laufey, arguably frægasti Íslendingurinn í dag er með bókaklúbb. Í þessum bókaklúbbi er ekki lesin ein einasta bók eftir íslenskan rithöfund. Er þetta ekki svolítið skrítið?
Maður skrifar ekki ljóð fyrir aðra maður skrifar þau fyrir sig sjálfan og fyrir listina ❤️
Blaðamaður, rithöfundur, verkefnastjóri, frístundaleiðbeinandi, þjónn, kaffibarþjónn, í myndlistargalleríi, fatabúð, byggingarvinnu, símasölumaður...
Það er ekkert mál að gefa út ljóðabók sjálfur! Do it!
Ég er búinn að vinna við flestar vinnur sem ég hef einhverntíma hugsað mér að stunda nema þá sem ég veit að er mín sanna köllun: Kokteilbarþjónn 🍸
🤣
Horfði á myndina Frankie & Johnny um daginn þar sem er sena þar sem Al Pacino, nýkominn úr fangelsi, borgar vændiskonu fyrir að spoona sig og ekkert meir. Og veistu ég skil það vel!
Vil samt taka fram að ég er bara mjög góður. Alls ekki einmana í mínu lífi. En ég pæli oft í þessu. Er eðlilegt að eina líkamlega nándin sem einhleypt fullorðið fólk upplifi sé once in a blue moon þegar það sefur hjá einhverjum?
Ég veit ekki hvort fólk í samböndum og/eða fólk sem á börn gerir sér grein fyrir því hversu sjaldgæf líkamleg nánd er þegar maður er fullorðinn og einhleypur. Ég knúsa kannski mömmu mína og vini mína nokkrum sinnum í viku og mjög oft er það eina líkamlega snertingin sem ég upplifi þá vikuna.