Advertisement · 728 × 90

Posts by siggi mús

Í dag komst ég að því að á Landspítalanum Fossvogi er bráðaöldrunarlækningadeild.

Aldrei hefði mér dottið í hug að þetta væri vandamál sem kallaði á heila deild: bráðaöldrun

3 days ago 4 0 2 0
Preview
Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni um leiðtogafundinn í Höfða - RÚV.is Hollywood-kvikmynd um leiðtogafund Reagans og Gorbachevs í Höfða er væntanleg í ágúst.

Fréttamaður: Ég gerði frétt um nýju stikluna fyrir myndina um fundinn í Höfða
Fréttastjóri: Frábært! Settirðu stikluna í fréttina? Eða hlekk?
Fm: Ö, nei? Á ég að gera það?
Fs: Nei, alls ekki! Fussumsvei!

www.ruv.is/frettir/menn...

1 week ago 3 0 0 0

og var það ekki líka Pálmi sem söng:
Hvers vegna varst'ekki skyr?

1 week ago 3 0 0 0

Bíddu, var það ekki Pálmi Gunnars sem söng:
Ég elska þig
þótt þú sért úr, Steini!

1 week ago 2 0 1 0

A: „Hey, eigum við að fara út að borða á Pósthús mathöll í kvöld?“
B: „Endilega! Skoðum samt fyrst hvað er á boðstólum, fyrir krakkana!“
A: „Ö...“ *Downloadar tveimur myndum og sjö pdf skjölum í símann*

1 week ago 4 0 0 0

Affleirtöluvæddu kvikmynd:

Hross í mér

2 weeks ago 2 0 0 0
Til vinstri: Playmobil Batman úr Kinder eggi. 
Til hægri: málsháttur úr páskaeggi, Batnandi manni er best að lifa

Til vinstri: Playmobil Batman úr Kinder eggi. Til hægri: málsháttur úr páskaeggi, Batnandi manni er best að lifa

Barn: Batmanni er best að lifa!

2 weeks ago 9 0 0 0
Málsháttur úr páskaeggi: Bregður barni til ættar

Málsháttur úr páskaeggi: Bregður barni til ættar

Bö!

2 weeks ago 2 0 0 0
Advertisement
Autocomplete enn í stuði. Ég skrifaði Var að ryksuga og Gboard stakk upp á kynlíf

Autocomplete enn í stuði. Ég skrifaði Var að ryksuga og Gboard stakk upp á kynlíf

Ööö, hvernig..? 🤔

2 weeks ago 4 0 0 0

Intra ráðgjöf sér um sína

2 weeks ago 2 0 1 0
Ungur maður, léttklæddur í snjó

Ungur maður, léttklæddur í snjó

Þegar þú heyrir í ísbílnum keyra út úr botnlanganum og panikkar

2 weeks ago 9 0 1 0
Spor eftir hund í snjónum

Spor eftir hund í snjónum

Góðan daginn

2 weeks ago 14 1 0 0
Merki knæpunnar Bad Mickey Bar

Merki knæpunnar Bad Mickey Bar

Dóttir: „Af hverju er einhver AI Emil í Kattholti að sýna okkur efforðputtann?“

2 weeks ago 6 0 0 0
Tjaldur sem haltraði um og skildi ekkert í þessum snjó

Tjaldur sem haltraði um og skildi ekkert í þessum snjó

Haltur og ringlaður tjaldur

3 weeks ago 3 0 0 0
Opnaði útidyrnar og í ljós kom önnur, úr snjó

Opnaði útidyrnar og í ljós kom önnur, úr snjó

Hmmmm, ég man ekki eftir að hafa sett upp aðra útihurð 🤔

3 weeks ago 15 0 0 0

Man ekki betur en ég hafi svo eftir tónleikana brunað beint í Laugardalshöll til að sjá upprisu Sykurmolanna.

Með stærri kvöldum minnar tónlistarsögu 😃

1 month ago 5 0 0 0
Miði á tónleika Sufjan Stevens í Fríkirkjunni 17. nóvember 2006

Miði á tónleika Sufjan Stevens í Fríkirkjunni 17. nóvember 2006

Þetta datt úr bók sem ég hef greinilega ekki opnað í 20 ár

Þetta var dásamleg stund

1 month ago 7 0 1 0

Morgun. Frídagur. Í húsinu heyrist ekki þrusk
Kíki inn til pjakksins, sem teygir aðeins úr sér
Pjakkur: *opnar augun, umlar eitthvað*
Róta létt í krullunum á honum
Pjakkur: „Hvað er 88 plús 22?“
Pabbi: „ö, 110!“
Pj: „Rétt!“ *snýr sér upp að veggnum og lokar augunum*

1 month ago 6 0 0 0
Advertisement

Ég pabbabrandaraði yfir mig og á ekki lengur fjölskyldu

Pjakkurinn bað um eggjabrauð.
Ég: „Hvað pantaði hesturinn?“
Allir: 🤔🤷
Ég: „Hneggjabrauð!“ 🤠
Allir: Dóu úr second hand embarrassment

1 month ago 13 0 1 0
Autocomplete í góðu stuði. Ég skrifaði Já þetta var mjög fyndið, og autocomplete stakk upp á kynlíf

Autocomplete í góðu stuði. Ég skrifaði Já þetta var mjög fyndið, og autocomplete stakk upp á kynlíf

Gboard með áfellisdóm í morgunsárið

1 month ago 7 0 2 0

Í u.þ.b. annarri hverri tilraun skrifa ég kreditkrot en ekki kreditkort.
Þetta plagar mig reyndar ekki svo mikið síðan ég hætti að vinna í markaðsdeild kreditkrotafyrirtækis

1 month ago 7 0 0 0

Á Reykjanesbraut
Pabbi: „Veistu hvaða fjall þetta er?“
Pjakkur: „Nei“
Pa: „Keilir“
Pj: „Já, Keilir! Það er 379 metrar!“

2 months ago 8 0 0 0

Pjakkurinn, 10 ára, fór út að sníkja nammi.
Hann aflaði vel, enda söng hann sitt á hvað þjóðsönginn og Rap God
#krakkaskítur

2 months ago 5 0 0 0

Horfði á Karate Kid með dætrum mínum í gærkvöldi.

Þar sem ég er eldri en Pat Morita þegar hann lék í myndinni má ég—ef mig svo lystir—löglega segja „Hurt old man feeling“

2 months ago 6 0 0 0

Ég er ekki að segja að ég sé latur að þrífa bílinn, en tvö af þremur börnum héldu í smástund að ég hefði keypt nýjan

(það þriðja kom heim eftir myrkur)

2 months ago 14 0 0 0

Ég mun aldrei segja hvar, en í gær var ég afgreiddur af manni sem leit út eins og vondikall í Despicable Me

2 months ago 6 0 0 0

Prúðuleikararnir fóru frá því að vera fóður fyrir martraðir í að vera uppáhalds þegar við fengum litasjónvarp

2 months ago 3 0 0 0
Advertisement

Ég hef aksjúallí notað sveitasíma og í heilt sumar í sveit handmjólkaði ég kúna

2 months ago 11 0 2 0

Vel gert!

2 months ago 0 0 0 0

Ertu með domain?

Mig langar að færa mig, en er smeykur við að klúðra einhverju 🫣

2 months ago 0 0 1 0