Ákvörðunin sætti harðri gagnrýni og brugðust sælgætisframleiðendurnir tveir við með því að framleiða páskaegg og gefa starfsfólki spítalans.
Posts by Fréttastofa RÚV
Fyrr í mánuðinum greindi Morgunblaðið frá því að vegna niðurskurðar fengju starfsmenn ekki páskaegg frá Landspítalanum eins og tíðkast hefur. Úrræðið var sagt vera til að mæta þriggja til fjögurra milljarða króna niðurskurðarkröfu ríkisstjórnarinnar. Um stærsta vinnustað landsins er að ræða.
Starfsfólk Landspítalans hefur fengið afhent sjö þúsund páskaegg frá sælgætisframleiðendunum Góu og Omnom. Síðasta sending þeirra var keyrð út í dag, til hjartadeildarinnar.
Í viðtali við breska blaðið Telegraph segir Trump að Bretar „eigi ekki einu sinni sjóher. Þið eruð of gömul og áttuð flugmóðurskip sem virka ekki.“ www.ruv.is/frettir/erle...
Í samtali við Telegraph segir hann bandalagið vera pappírstígur. Það sé eitthvað sem bæði hann og Rússlandsforseti átti sig á.
Jens Stoltenberg fjármálaráðherra Noregs segir að ákveðið hafi verið að grípa til skjótra aðgerða.
Mikilvægar upplýsingar fyrir áhugafólk um sæðisgæði:
www.ruv.is/frettir/innl...
Tengt þessu: Vegir eru lokaðir vegna veðurs og á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Innanlandsflug raskast vegna hvassviðris.
www.ruv.is/frettir/innl...
Veðurstofan varar við veðri í dag. Þið getið skoðað veðurvef okkar á ruv.is til að fá yfirlit:
www.ruv.is/vedur
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er í þriðja sæti yfir lengstu umræður í fyrri umferð frá aldamótum.
Forsætisráðherra Breta segir að unnið sé að raunsærri áætlun um opnun Hormússunds en að NATO komi þar hvergi að. Bandaríkjaforseti hefur sagt það vont fyrir framtíð NATO ef aðildarríkin myndu ekki aðstoða í Íran.
Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
Tónlistarkonan Laufey heillaði aðdáendur sína í Kórnum um helgina. Tónleikarnir voru sannkallað sjónarspil.
Fleiri myndir hér: www.ruv.is/frettir/innl...
Séra Geir Waage, tengdafaðir sonar Davíðs, er prestur. Tómas Guðni Eggertsson er organisti, Sigurgeir Agnarsson leikur á selló, Kristinn Sigmundsson syngur Við Vatnsmýrina eftir Sigfús Halldórsson, við ljóð Tómasar Guðmundssonar. Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar syngur.
Þétt setið er í Hallgrímskirkju þar sem útför Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóra, fer nú fram.
Um leið hafi verið lögð áhersla á að það sé hlutverk alþjóðlegra dómstóla að skera úr um hvort um hópmorð, sem einnig sé kallað þjóðarmorð, sé að ræða.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti segir að íslensk stjórnvöld hafi fordæmt bæði hryðjuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gasa.
RÚV fagnar sjötugsafmæli Bubba Morthens með sjónvarpsþáttum um bestu lög tónlistarmannsins. Þjóðinni gefst færi á að kjósa sín uppáhalds Bubba-lög sem tekin verða fyrir í þáttunum.
Aukningin skýrist fyrst og fremst af vopnasendingum til Úkraínu eftir innrás Rússlands árið 2022 og því að mörg Evrópuríki hafa aukið vopnakaup til að styrkja eigin varnir.
Vopnasendingar milli ríkja jukust um 9,2% á árunum 2021–2025 ef miðað er við fimm ára tímabilið þar á undan. Þetta er mesta aukning sem mælist frá árunum 2011–2015, samkvæmt nýjum gögnum Alþjóðlegu friðarrannsóknastofnunarinnar í Stokkhólmi, SIPRI.
Ríkisstjórnin leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst um það hvort halda eigi samningaviðræðum við Evrópusambandið áfram.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að kvikumagn undir Svartsengi verði það mesta sem safnast hefur milli eldgosa frá því að hrinan hófst í desember 2023. Kvika hefur safnast í um 210 daga og um 22,5 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir.
Upplýsingafulltrúi Icelandair biðlar til farþega sem eru á leið til Norður-Ameríku að fylgjast vel með tilkynningum frá Icelandair um mögulegar breytingar á flugi.
www.ruv.is/frettir/innl...
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í samtali við fréttastofu að þarna hafi gert veðurhvell með þungum, blautum snjó, hvassviðri og lélegu skyggni um klukkan hálf þrjú. Vélar frá nokkrum flugfélögum hafi orðið fyrir áhrifum vegna þess. Vonast væri til þess að veður færi skánandi.
Landsréttur hefur sakfellt Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðing, fyrir manndráp af gáleysi. Dómurinn var kveðinn upp í dag.
Nánar um þetta mál hér á vef okkar: www.ruv.is/frettir/innl...
Efnið gengur kaupum og sölum á samfélagsmiðlum og er bein að unglingum sem vilja „lookmaxa“ 👇
www.ruv.is/frettir/innl...
Í réttarhöldum yfir Høiby, syni Mette-Marit krónprinsessu Noregs, var rifist um Onlyfans og rætt um skapið hans. Þú getur lesið nánar um réttarhöldin hér: www.ruv.is/frettir/erle...
„Við höfum áhyggjur af stöðunni í heild,“ segir Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. „Gangarnir eru mikið nýttir og þeir eru nýttir umfram það sem neyðaráætlun gerir ráð fyrir.“