Advertisement · 728 × 90

Posts by Snærós Sindradóttir

Já já kynlíf er ágætt, en hefurðu prófað að skila inn ritgerð sem er meira og minna copy/paste úr þínum eigin fyrri skrifum?

11 months ago 10 0 1 0
Post image

Vikan kemur út í dag og forsíðan er söguleg. Ólöf Tara var náttúruafl. Um það eru öll sammála. Ég tók viðtal við baráttusystur hennar sem er bæði nærandi og inspirerandi. Takk fyrir traustið Öfgar.

1 year ago 22 1 0 0

Skítt með aukna fjármálakennslu og kynfræðslu í skólum. Það sem væri raunverulega þjóðhagslega hagkvæmt væri að kenna fólki að svara öllum atriðum/spurningum sem það fær í tölvupóstum en ekki bara einhverju einu í hvert sinn.

1 year ago 17 0 0 0

MA ritgerð skilað!

1 year ago 14 0 1 0

Opinber leyndarmál. Leyndarber opinmál.

1 year ago 6 0 0 0

Ég er ekki grahö - en mig svimar yfir magninu af viðvaningslega unnu efni sem kemur frá frambjóðendum til rektors HÍ og formennsku í VR. Það er dýrt að fá fagmann í verkið en sumu mætti kannski útvista til fólks með rétt stillt gleraugu?

1 year ago 2 0 0 0

Ég er búin að nota orðið experience 55 sinnum í MA ritgerðinni minni og er samt bara hálfnuð. Enska er stundum svo fátæklegt tungumál. Flest „samheiti“ enskunnar ná ekki yfir hugtakið sem útleggst best sem opplevelse upp á dönskuna og upplifun, reynsla, augnablik eða andrá á íslensku.

1 year ago 2 0 0 0

Mótþróaþrjóskuröskunin mín brýst svo harkalega fram gagnvart öllum mönnunum sem teljast helstu hugmyndafræðingar vestrænnar menningar að ég þjáist við það eitt að vitna í Kant í MA ritgerðinni minni.
Væri til í að sleppa þeim öllum nema Afa Marx, því hann er góður kall og klár og vill mér vel.

1 year ago 12 0 2 1

Myndi prófa kúlusúkk við þessu

1 year ago 2 0 1 0

Ef þið mættuð breyta einhverju einu við ykkur, hvað væri það og af hverju væri það að hafa getuna til að borða endalaust kúlusúkk án þess að það kæmi niður á heilsu ykkar?

1 year ago 6 0 1 0
Advertisement

Gaman að byrja mánudagsmorgun í örtaugaáfalli á baðvoginni og muna svo að ég leyfði dóttur minni að bjóða mér í “nammilautarferð” í gær. Geggjað konsept sem sló í gegn. Næst vigta ég mig á fimmtudegi.

1 year ago 1 0 0 0

Hot lúkk að vera með sólgleraugu í myrkvuðu herbergi en samt með ofbirtu í augunum…

1 year ago 4 0 0 0
Post image
1 year ago 2 0 0 0

Mastersritgerðin gengur hægt svo ég er búin að bóka mér tvær nætur á hóteli til að komast almennilega inn í hana. Get ekki beðið: orkudrykkir, nammi, heimsendingar og Pierre Bourdieu classismi 🤌

1 year ago 4 0 0 0
Preview
Sjónin mín: Tilfinningapistill — Snærós Sindradóttir Sjónskerðingin hefur spilað risarullu í lífi mínu í þrjátíu ár, og bráðum læt ég reyna á að kveðja hana.

Á morgun rölti ég í laseraðgerð og losna við linsur og gleraugu. Mest hlakka ég til að sjá sjálfa mig þegar ég mála mig, og manninn minn þegar ég sef hjá honum (oj tmi!)
www.snaeros.is/blogg/tilfin...

1 year ago 11 0 1 1

Óttinn sem ég geng í gegnum í hvert sinn sem einhver tilkynnir andlát á Facebook og ég triple tékka hvort ég hafi sent hamingjuóskir í stað samúðarkveðja er lamandi

1 year ago 6 0 1 0

Hópspjöllin mín eru að velta því upp hvort Heimir Már og Inga Sæland séu mögulega sálusystur

1 year ago 4 0 0 0

Þetta snerti mig nákvæmlega ekki neitt.
En mér þykir mjög sorglegt að á netinu hafi alltaf verið fólk sem þarf að sækja kikkið sitt í destructiveness, frekar en í að senda eitthvað geggjað skapandi og spennandi frá sér. Og þó á því séu undantekningar í allar áttir, þá er þetta kynjað, sem sökkar.

1 year ago 1 0 1 0
Post image

Fékk þetta á TikT í nótt og var kippt til 2000s þegar strákar voru oft að skrifa eins á bloggin mín. Mig langar að skilja kikkið sem þeir fá, en líka að stefna á að við komum þeim úr niðurrifinu og inn í sköpun og uppbyggingu á netinu. Að þeir sendi vandað efni frá sér sem þeir verða stoltir af.

1 year ago 12 0 2 0
Advertisement

Það eru þónokkur vel rekin forlög á Íslandi. Alls ekki úrelt að vera þeim megin í bransanum hjá þjóð sem er full af skúffuskáldum.

1 year ago 4 0 1 0

Ég skal leigja þér vinnuaðstöðu.

1 year ago 2 0 1 0

Stofna forlag. Gefa út bækur.
Gefa því nafn: Fríða forlag

1 year ago 4 0 1 0

Þetta snýst ekki um neinn pólitískan stuðning hérna megin, eða að vera sammála. Þetta snýst um að fólk er efnislega mjög misgott í að koma hlutum frá sér og margir halda að þeir séu að segja eitthvað en innihaldið er í raun ekkert.
Funnily enough, þá er ég að kenna fólki þetta!

1 year ago 0 0 1 0

Lilja Dögg er góður stjórnmálamaður fyrir okkur fjölmiðlafólk því hún segir hlutina alla jafna nokkuð umbúðalaust og skýrt - og stundum óvænt mjög fréttnæmt. Eftir viðtöl við Lilju líður manni eins og það hafi eitthvað haldbært komið fram en ekki bara ómarkviss froða. Svona til skýringar á þessu.

1 year ago 2 0 1 0

Kennir mér að hætta alfarið að kaupa pappírsbækur (keypti þessa fyrir titilinn) og láta bara senda allt í Kindilinn

1 year ago 0 0 2 0

Update. Fékk aðra bók senda í skaðabætur frá Amazon. SAMA VANDAMÁL! SAMA HELVÍTIS BÓK PRENTUÐ INNÍ KÁPUNA.

1 year ago 14 0 2 0

Takk ❤️
Þetta eru pils og vesti í miklu uppáhaldi

1 year ago 2 0 0 0
Post image Post image

Instagram vs. Reality
Þegar ég ætlaði loksins að lesa þessa bók í alvöru í gær (ekki bara fyrir myndina) kom í ljós að það var allt önnur bók prentuð inn í kápuna! Vel að túlka þetta sem róttæka ritskoðun Amazon á feminískum sósíalisma. Bezoz á von á mér.

1 year ago 12 0 1 1
Advertisement
Preview
Að kalla hlutina réttum nöfnum — Snærós Sindradóttir Ég snöggreiddist þegar ég sá frétt RÚV í morgun undir fyrirsögninni „Elon Musk virðist senda fasistakveðju“…

Ég er með heimasíðu þar sem ég blogga stundum því Substack er fyrir nerds. Bloggaði aðeins um vini mína á RÚV í dag og þessa fyrirsögn sem stuðaði mig.

www.snaeros.is/blogg/ad-kal...

1 year ago 27 6 0 0

Eftir margra mánaða fjarveru á X var ég að eyða aðganginum mínum. Hef líklega ekki eytt somed aðgangi síðan á MySpace. Spes tilfinning.

1 year ago 12 0 0 0