Það er mjög mikilvægt fyrir blankt fólk að eyða að lágmarki 1.5 milljón á ári í bíl og bensín og helst öðru eins í viðgerðir á nýbyggðri blokk á Kjalarnesi.
Posts by Valdikaldi
Skemmtilegt að morðingi Geirfinns sé mjög sennilega fundinn en kápan á bókinni afgreiði það sem þvælu.
Segðu bara að þetta sé ykkur báðum fyrir bestu. Og að þú sért vandamálið.
Hentu sjónvarpinu þínu, þú hefur ekkert við það að gera.
Í dag leyfði MAST einhverjum barbara að drepa tugtonna móður með 4 metra barn í kviðnum til að brytja í hundamat. Af hverju erum við svona?
Hvað er útpældara en að setja Landsrétt í gamalt methlab í Kópvogi?
Planið var samt sennilega meira að hata fólk á flótta og fólk sem vinnur á veitingastöðum en er betra í öðrum tungumálum en íslensku. En þetta er auðvitað ekki keppni.
Ég er að tala um sláandi dagamun og mun milli sama tíma í fyrra. Hitt er önnur saga en vissulega áhugaverð.
Getur einhver sem er ekki Kjartan Magnússon eða Kristján Loftsson útskýrt fyrir mér af hverju umfeeðin er svona óvenju leiðinleg þessa dagana?
Rosalega er óþægilegt að vera hálfpartinn sammála Kjartani Magnússyni. Af hverju er ekki sett almennilegt trukk strax í að bæta Strætó? Af hverju er fólkið sem valdi versta app heims bara áfram að velja hluti? Hverjum er ekki drull um Borgarlínu sem allir vita að verður stútað?
Mér finnst að Hannes Hólmsteinn Gissurarson eigi að bera út rukkanir fyrir námslán. Til að við munum hvað heimurinn er í raun og veru súr.
Ertu að segja að mig skorti skammtímaminni?
Það er ótrúlega pínlegt að Hannes Hólmsteinn Gissurarson sé tekinn alvarlega sem hugmyndafræðingur stærsta stjórnmálaflokks landsins.
Mér finnst svo leiðinlegt að það sé til fólk sem finnst í lagi að murka lífið úr stærstu spendýrum jarðar af því það skilur hvorki orðin “atvinnufrelsi” né “meðalhóf.
Vg er komið í sleik við vöndinn.