Advertisement · 728 × 90

Posts by Berglind Rós

Tvennt sem ég væri til í að gera kannski svona einu sinni í mánuði eða svo er að fara á Móses Hightower tónleika og á Interstellar í bíó. Þess á milli myndi ég púsla og hlusta á Veru Illuga og drekka hvítvín og borða piparhúðað Rís. Þetta held ég að væri fullkomið líf.

1 month ago 0 0 0 0

Þegar þessum fáránlega annasama kafla í lífi mínu lýkur þá ætla ég að sitja heilt kvöld og borða piparhúðað Rís og drekka hvítvín og horfa á þátt og kannski púsla og það verður besta kvöld lífs míns

1 month ago 1 0 0 0

Þetta sem er boðið upp á í dag er hins vegar það sem á fræðimáli myndi kallast skítaveður, og enginn elskar 😤

1 month ago 0 0 0 0

Æ mér er sama þó þetta sé svolítið bras, ég bara elska þennan snjó 🥰☃️❄️

1 month ago 1 0 0 1
Post image

Ef ég væri vöruhönnuður hjá Ikea myndi ég kannski ekki nota sama nafn og nánast sama útlit fyrir tvær ólíkar vörur með gjörólíka notkun. Góðu fréttirnar eru að ég eyðilagði ekki eldhúsborðplötuna og á núna olíu til að bera á útihúsgögnin í sumar...

1 month ago 0 0 0 0

Ef ég væri menntamálaráðherra myndi ég gera skólasund valkvætt í unglingadeild #efégværi

1 month ago 0 0 0 0

GitHub authentication í þróunarumhverfinu mínu hætti að virka eftir Windows update (og eitthvað ssh mauk) og nú er ég að íhuga að skipta um starfsvettvang

1 year ago 2 0 0 0

Glatað ☹️

1 year ago 1 0 0 0

Ég er að horfa til að taka ákvörðun og mögulega skipta um skoðun.

1 year ago 1 0 0 0
Advertisement

😞

1 year ago 1 0 0 0

Ég er (supposedly) ekki með ADHD en í morgun gleymdi ég starfsmannakortinu og þurfti að banka á dyrnar í vinnunni en svo bara fann ég það á buxunum mínum 😐

1 year ago 2 0 1 0
Post image

3.5?

2 years ago 0 0 0 0

Lífið er ekki alltaf grænna hinum megin við grasið

2 years ago 2 0 1 0
Post image

Alveg úr samhengi rifjaðist þetta upp fyrir mér. Víííí 🐄

2 years ago 0 0 0 0

Bara að það væri svo gott...

2 years ago 0 0 0 0

Þetta er nú meira ruglið

2 years ago 4 1 1 0

Af bíómynda-áhorfi síðustu daga er ég búin að læra tvær stórgóðar setningar sem ég mun hér eftir leitast við að nota sem oftast í vinnunni, "look at me like this makes sense" og "hack everything!"

2 years ago 2 0 0 0
Advertisement

Ég krefst þess þegar í stað að a) mér batni af þessari kvefpest, b) veðrið batni og c) það verði opnað að gosinu!

2 years ago 0 0 0 0

Getum við plís tekið saman höndum um að gera það félagslega óásættanlegt að tala í síma með hátalarann á á almannafæri #stórumálin

2 years ago 2 0 0 0

Ef þið hafið einhvern tímann velt því fyrir ykkur hvort sé hægt að gera belgískar vöfflur í samlokugrilli þá er svarið nei

2 years ago 2 0 1 0

Barnið svangt og pirrað að vera eitt með foreldrunum í smábæ úti á landi í vetrarfríinu svo við keyptum pönnukökumix en erum bara með djúpa steikarpönnu svo nú er ég jafn pirruð og barnið. Eiginmaðurinn var í bílaviðgerðum á meðan og gekk húddið í hausinn. Kannski bara Tenerife næst...

2 years ago 1 0 0 0
Opið bílskott með smá farangri og rafmagnspíanói

Opið bílskott með smá farangri og rafmagnspíanói

Eru annars ekki allir með píanó með sér í vetrarfríinu? #allteðlilegthér

2 years ago 1 0 0 0

Nei strætó án gríns! Í síðustu viku var einn rétt búinn að keyra á eitt barnið mitt. Núna var annað (og yngra) barn í vagni sem fauk/rann á skilti. Í staðinn fyrir að tékka á barninu og hafa samband við foreldra, þá var það rekið út úr vagninum, í gulri viðvörun, lengst úti á Álftanesi!

2 years ago 0 0 1 0

Ekki þarna sem betur fer, eða alla vega ekki okkur vitanlega.

2 years ago 2 0 0 0

Þetta virðist m.a. hafa átt við um strætó, ég sat lengi föst í röð á eftir einum sem hafði runnið út í kant, og sonur minn var rétt búinn að fá annan inn í hliðina.

2 years ago 1 0 1 0

Hvaða kjáni myndi nú vera með tölvuna tengda við fjöltengi með takka og vera með fjöltengið á gólfinu við fæturna á sér? Nei ég segi bara svona.

2 years ago 3 0 0 0

Hundurinn var að fá lyf fyrir 50 þúsund og eitt barn er brotið og það fór að leka úr loftinu á baðherberginu á neðri hæðinni og ég var að reyna að losa um pinnann í ofninum í vinnuherberginu og þá fór hann að leka og þessi vika má bara fokka sér ok takk bæ.

2 years ago 1 0 0 0
Advertisement

Fékk spurningu frá barni í dag hvort ég væri hjúkrunarkona. Ég er reyndar tölvunarfræðingur, en það lærist ýmislegt á því að eiga þrjú vel virk börn 😄

2 years ago 1 0 1 0

Lærði nýtt orð á internetinu og nýja markmiðið mitt er núna að klífa vitorðastigann

2 years ago 0 0 0 0

Vá hvað þessi leigubílstjóri yrði mín uppáhalds manneskja um eilífð ❤️

2 years ago 1 0 0 0