Bæði. Og tví tví.
Posts by evva
Man eftir að hafa heyrt það líka þegar ég var krakki á Siglufirði.
Vá svo fallegt!
Ok. Love it. Tek þetta næst.
Hahaha tek þetta til mín
Er með nokkur þannig númer merkt hjá mér líka.. nenni bara 0 að standa í þessu. Sendið mér frekar tölvupóst eða jafnvel sms. Bara plís ekki hringja í mig.
Gæti vissulega svarað og beðið þau um að láta mig í friði en geri ég slíkt? Nei.. verð bara meðvirk og er svo að urlast inní mér yfir því að segja þeim ekki að hætta..
Ég er með 8 missed calls á tveimur sólarhringum sem eg reikna með að tengist kosningum í HÍ. Finnst fátt jafn ôgeðslega pirrandi og að fá sölusímtöl (sem eiga að sannfæra mig um hvað ég eigi að kjósa) og það gerir ekkert annað en að kveikja í mótþróa hjá mér. Getiði plís bara látið mig í friði!
Ok ég missti af honum. Var þetta vinsælt?
Það ætti að vera sérstök heimsending, á t.d. sælgæti, í boði fyrir bíllausar konur í fæðingarorlofi sem eru á túr. Sem kosta ekki hálfan handlegg. Fæðingarorlofsafsláttur ætti að vera thing 🥴🥴
Til hamingju 💛
Var ég að enda við að klára að kraftgráta í bílnum yfir You’ll be in my heart með Phil Collins með (næstum) 5 mánaða strákinn minn aftur í? Kannski..
Spennandi!
Hlusta yfirleitt á rás 1 & 2 til skiptis í bílnum.. Og kveiki orðið á útvarpinu heima í orlofinu á morgnana líka. Finnst það voða notalegt.
Erasmus skiptinám. Var í grunnnámi í myndlist í Den Haag og fór í eina önn til Istanbúl. Eini skiptineminn í skólanum, enginn talaði ensku og þá var leyst me því að ég þurfti varla að mæta. Gæti ekki dásamað borgina, lífið þar og fólkið meira 🥰💛
Já var einmitt líka í frönsku í menntaskóla. En veit að ég yrði fljót að ná þýskunni ef ég þyrfti. Sérstaklega með smá grunn í hollensku.
Mér finnst hollenska og danska merkilega lík tungumál. Sé líka líkindi með Dönum og Hollendingum.. kannski er það landslagið sem veldur 🤷🏼♀️
Vildi að ég hefði náð henni betur. Og hef ekkert haldið henni við. Elska Tyrkland. Hef ekki farið síðan í skiptináminu en er alltaf a leiðinni að heimsækja alla þá góðu vini sem ég eignaðist þar.
Lærði samt að hún hefur viss líkindi með finnsku að mörgu leyti þó svo að tungumálin séu ekki skyld. Þessi Lego-uppbygging.
Dæmi: Evlerimde yaşıyorum
ev = hús
ev-ler = hús (fleirtala)
ev-ler-im = húsin mín
ev-ler-im-de = í húsunum mínum
yaşıyor = lifa (núna)
um = ég
En tyrkneskan er ótrúlega skemmtileg. Mjög flókin en einföld á sama tíma, ekki lík neinu öðru tungumáli sem ég hef kynnst. Smá eins og Lego þar sem þú púslar endingum á stofninn(no/so) í stað forsetninga og slíks. Og engin málfræðileg kyn. Í raun mjög rökrétt og fyrirsjáanleg ef þú kannt reglurnar.
En viðurkenni að ég fílaði Holland og Hollendinga ekkert sérstaklega heldur og það kveikti á einhverjum mótþróa hjá mér.. fór í bakkgír og ákvað að taka ekki hollensku-kúrsa 😅😬
Það er tiltölulega auðvelt að lesa hollenskuna um leið og talsvert um tökuorð úr ensku. Eins nýttist skóladanskan mér. En ég lærði aldrei þýsku í skóla, hefði eflaust skilið meira með bakgrunn í þýsku. En mér finnst hljóðin í hollenskunni skelfileg og enska með hollenskum hreim the worst!
Man eftir svona mómentum þegar ég var í námi úti í Hollandi. Hollenskan alltumlykjandi (lagði samt mjög lítið á mig að læra hana því mér finnst hún ljót), námið á ensku og búandi með Svíum. Sérstaklega eftir skiptinámið í Tyrklandi þar sem ég reyndi að læra tyrkneskuna 🫠
Það er nú eitthvað grínigrín í gangi á tikkedítokk þar sem fólk lætur maka prófa “nýtt” krem og segir það svo vera hvalasæði eftirá til að sjokkera. En kannski er það eitthvað?
Er vissulega aaaðeins búin að læra og fer frekar í göngutúr a þessum tíma dags þegar viðrar. Ungbarnagrátur hefur þau áhrif.
Geri þetta alltof oft í orlofinu að fara út í “bíltúr” að svæfa seinni partinn.. gengur ekki eins smurt að svæfa þegar við erum stopp í umferð 😅🥴🫠
Kærar þakkir! 🥰🥰
Þetta prenta ég út og set í ramma 🤝 takk fyrir mig segi ég bara!
Hljómar mjög vel. Læt mig dreyma um einhverskonar áframhaldandi nám/skiptinám erlendis eftir master í lögfræði ef ég ákveð að klára.. París er ofarlega á lista.
Ah já, næs 🌱
Hvert er heitið á náminu sem þú ert skráð í? Og eru þetta fyrst og fremst valáfangar eða allt saman skylduáfangar?