Advertisement · 728 × 90

Posts by Inga

Ég sit úti í glugga að bíða eftir næstu með skeiðklukkuna á úrinu tilbúna til að telja sekúndurnar á milli eldinga og þruma

2 weeks ago 7 1 1 0

Jú hljómar eins og þetta sé nákvæmlega stemningin sem ég er að leita að

4 weeks ago 1 0 0 0

Ég gæti góðan harmonikkustemmara á næstunni. Lítið um það að fólk grípi í nikkuna á mannamótum nú til dags

4 weeks ago 5 0 1 0

Evil en í flottum rúllara 😎

1 month ago 5 0 0 0

Það er örugglega slatti af fólki sem á fjögurra ára brúðkaupsafmæli í dag

1 month ago 9 0 0 0
Spil úr borðspilinu Pöbb Kviss í flokknum þrjú hint

Spil úr borðspilinu Pöbb Kviss í flokknum þrjú hint

Þessar spurningar væru umtalsvert leiðinlegri ef flokkurinn væri þrjú hnit. Nema kannski fyrir landfræðinga

2 months ago 10 0 1 0

Fuck saltkjöt-og-baunir-túkall

All my homies hate saltkjöt-og-baunir-túkall

2 months ago 13 0 1 0

Ég átti almennt frekar glötuð uppvaxtarár. En það er fátt úr endurminningum æsku minnar sem veldur mér jafn mikilli velgju og saltkjöt-og-baunir-túkall.

Vanrækslan var svo rækilega undirstrikuð í útþynntu baunasúpunni sem var hituð upp sjötta daginn í röð. Ekkert annað á boðstólnum alla þessa daga.

2 months ago 19 0 2 0
Advertisement

Þessi fugl er með svo ógnandi áru

2 months ago 4 0 1 0

Þetta gæti reyndar líka verið listdans á skautum. Óður til vetrarólympíuleikanna

2 months ago 3 0 0 0

Persónulega er ég smá móðguð því ég er mjög góð í að kúka 😡

2 months ago 6 0 0 0
Post image

Þetta er dæmi um auglýsingu sem algríminu finnst mikilvægt að ég sjái

2 months ago 13 0 2 0

Þetta er svo... Rómantískt. Jaðrar við að vera erótískt

2 months ago 7 0 1 0

Ohhh ég spilaði hann líka í haust. Sakna hans!

2 months ago 1 0 1 0

Vikivaki er hið íslenska Vogue 🤠

2 months ago 4 0 0 0

Nei bíðið hæg. Ég er enn 33 ára

2 months ago 16 0 1 0
Advertisement

Í dag fór ég (34 ára) upp í Tækniskóla þar sem strákur klippti mig og litaði. Hann var á síðasta ári sem þýðir að hann hefur verið svona 20 ára.

Kennarinn spurði mig hvort ég væri mamma hans :)

2 months ago 27 0 2 1

Giskið hvað gerist á morgun

2 months ago 11 0 1 0

Claude Njarðvík þá?

2 months ago 0 0 0 0

Stjórn Bifrastar virðist ekki hafa tekið áfangann breytinga- og krísustjórnun sem kennd er við skólann :)

2 months ago 15 0 1 0

Ég hefði náttúrulega bara átt að senda strax á Birki

2 months ago 4 0 0 0

Kæra Bluesky, nú þarf ég hjálp. Getur einhvert ykkar fundið myndina af konunni með hassflöskuna. Þessi í rauðu úlpunni með gleraugun sem er svo vonsvikin á svipinn.

Þarf þessa mynd fyrir eitt

2 months ago 15 0 3 0
Post image

😡😡😡

2 months ago 14 2 0 0
Advertisement

Það er bara einn Möller sem ég vil sjá og það er Helga

2 months ago 4 0 0 0

Við Dani vil ég segja: Íslendingar muna eftir maðkaða mjölinu. Þið hafið troðið okkur nógu mikið um tær í gegnum tíðina 😡

Okkar tími mun koma! #emruv

2 months ago 9 1 0 0
Rjómabolla úr Ikea. Yndislegt

Rjómabolla úr Ikea. Yndislegt

Rate my kvöldmatur

2 months ago 12 0 3 0

Uuuu hefurðu séð Bandaríkjaforseta?

2 months ago 10 0 0 0

Fólk heldur að ég (á 34. ári) ætli að byrja að reykja vegna streitu en svo er ekki. Þetta er einfaldlega svo fallegur dagur. Fullkominn fyrir útiveru

2 months ago 9 0 1 0

Dagurinn í dag væri mjög næs dagur til að byrja að reykja

2 months ago 11 0 1 0

Það gleður mig að tilkynna ykkur að á morgun, 31. janúar, verður fyrsti dagur ársins þar sem fullbjart er í yfir 7 klukkustundir (7 klst og 1 mínútu til að vera nákvæm)

2 months ago 23 0 0 1