Advertisement · 728 × 90

Posts by Auður Magndís

Preview
Den stora älgvandringen – Idag 00:00 I flera tusen år har älgarna vandrat samma leder för att ta sig till sommarens rika betesmarker. Följ årets vandring, som är den åttonde säsongen då vi får se älgarna vandra i rutan och på SVT Play.

Minni á að sænska ríkissjónvarpið sýnir beint frá stóra Elg-ferðalaginu á hverju vori. Hæglætis-sjónvarp af bestu gerð. Eina góða ástæðan fyrir að vera með tvo skjái í vinnunni.

20 hours ago 9 0 0 0

Já það eru einhverjir núansar í þessu. Ég bara lenti í því í morgun að nota þetta orð stakt sem svar við spurningu og meinti bara “já líklega” og var ásökuð um að vera með derring 😅

20 hours ago 5 0 1 0

Já ég kannast alveg líka við það en unga fólkið í kringum mig tekur því alltaf þannig og skilur þetta orð aldrei sem “líklega “

22 hours ago 1 0 1 0

Hafa hlustendur tekið eftir kynslóðamun á merkingu orðsins væntanlega? Ungt fólk í kringum mig notar það í merkingunni augljóslega en ég nota það í merkingunni líklega. Ef spurningu er svarað með væntanlega þá finnst þeim það vera svona "ekki vera bjáni að spyrja að þessu því svarið er augljóst".

23 hours ago 17 0 5 0

Ég vonaði árið 2012 að það yrði í síðasta sinn sem ég heyrði hinseginhatursviðbjóðinn leka út úr þverrifunni á föður mínum. Nei, nú hefur hann lært að nota tölvu og er farinn að spúa þessu í kommentakerfum 💀 Ef stjórnmálamenn gera það, af hverju ekki hann? Hefur hann vafalaust hugsað.

4 days ago 30 0 5 0

Eltingaleikur var það sem við gerðum, síðastaleikur var það sem mamma og amma sögðu að við værum að gera.

4 days ago 4 0 0 0
Preview
Stefna Rann­ís vegna neitunar um endur­greiðslu - Vísir Húðvörufyrirtækið Bioeffect hefur stefnt Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, vegna synjunar á umsókn félagsins um framlengingu skattafrádráttar vegna rannsókna og þróunar. Fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki h...

Ísland í dag:
Fyrirtæki eiga rétt á fjármagni vegna rannsókna og fara í mál ef þau fá það ekki.
Fræðafólk ver vikum í að skrifa umsóknir og svo eru ca 10% þeirra samþykktar.

5 days ago 10 1 0 0
Post image

Halló. Mig langar rosa mikið að fá góða nemendur á nýju námsbrautina sem við höfum verið sveittar við að hanna á undanförnum árum. Svo ef þið þekkið t.d. femínista eða hinsegin snillinga sem vilja kenna og verða sérfræðingar í jafnréttismenntun þá plís bendið þeim á þetta hér: hi.is/framhaldsnam...

1 week ago 16 4 0 0

Bókstaflega versta sætið imo þar sem maður situr bara með andlitið upp við vegg. Ég vil sjá út án þess að þurfa að snúa höfðinu 90°. Ég sit oftast aftan við miðju, helst þar sem er ekki bak fyrir framan mig af því ég er lítil.

1 week ago 3 0 0 0

Hinn rómaði réttur “redda sér sjálf”

1 week ago 2 0 0 0
Advertisement

Suma daga er þetta bara nauðsyn.

1 week ago 8 0 1 0

Vildi bara segja að ég er dósent í uppeldis- og menntunarfræði og þetta er kvöldmaturinn heima hjá mér í dag:
Ég: Doritos með kotasælu
Unglingur 1: Kelloggs frosties
Unglingur 2: Hakk og spaghetti, klukkan 16
Unglingur 3: Ben and Jerry’s

1 week ago 17 0 2 0

Ég að syngja Gullvagninn til að reyna að útskýra fyrir syni mínum hver Bó var og hann 100% að halda að ég væri að djóka með að þetta lag væri alvöru lag.

1 week ago 12 0 0 0

“Sá að þú varst í tíma áðan, eða tölvan þín var það allavega, en þar sem þú varst ekki með kveikt á myndavél og tókst ekki þátt í umræðunum langaði mig að spyrja hvort þú hafir verið á staðnum og hvað þér hafi þótt markverðast í tímanum?”

Það er alveg margt meira gefandi en að kenna á netinu.

1 week ago 15 0 0 0
Post image

Og að lokum 7. Eru að syrgja vin sinn páskaungann

2 weeks ago 11 0 0 0
Post image

6. Keyrir-um-á-Bens hérinn

2 weeks ago 3 0 1 0
Post image

5. Dópaðasti hérinn

2 weeks ago 4 0 3 0
Advertisement
Post image

4. Fágaðasti hérinn

2 weeks ago 3 0 1 0
Post image

3. Apaskítsbrúnasti hérinn

2 weeks ago 3 0 1 0
Post image

2. Mesta influencer væbið

2 weeks ago 3 0 1 0
Post image

Í Zürich virðist vera samfélagsleg skylda fyrirtækja að hafa funky páskahéra í gluggum.
Hér er myndasería með broti af því besta.
1. Mest ógnvekjandi

2 weeks ago 9 0 1 0

Notice how they never cite a study or statistic that justifies AI use in the classroom. Why? Bc there is basically no evidence that AI improves student learning outcomes (and they know it). Politicians are putting corporate profit ahead of student needs—a corporate-backed science experiment on kids

2 weeks ago 660 235 16 13

Á þjóðminjasafninu í Osló er hægt að velja um 4 túra frá 15-60 mín. Á þjóðminjasafninu í Zürich er hægt að velja 45 eða 60 mín en reyndar var manni þar mest bent bara á karla og stríð.
Ef fleiri skynsegin hafa forðast söfn þá boða ég sumsé þennan fögnuð, þau eru skárri en þau voru!

2 weeks ago 9 0 1 0

Mér hefur alltaf þótt erfitt að fara á söfn því allt er svo yfirþyrmandi og þau eru stór. En eftir að söfn fóru að gera öpp sem leiða mann í gegnum sýningarnar á þeim tíma sem maður sjálfur kýs þá elska ég þetta. Er með heyrnartól og fer bara á staðina sem appið segir mér að fara á.

2 weeks ago 10 0 1 0
Post image

I only love pferdemädchen!
Ég elska bara hestastelpur.
Svo sammála þessu en hver er Bon Jack?

3 weeks ago 4 0 0 0

Gaman að vegna einhverra reglna er stundtöflugerðin í HÍ þannig að ég get valið hvort nemendur fái 10 mín eða 110 mín í hádegismat næsta vetur.
Bara computer says no með alla aðra möguleika.

3 weeks ago 11 0 0 0
Advertisement

Vill einhver kaupa eða fá langtíma lánaðan frá mér infrarauðan poka sem eldar mann eins og souse vide? Sjúklega næs fyrir gigt, vöðvabólgu o.s.frv. En eftir að ég fór á breytingaskeiðið er mér alltaf heitt og þarf frekar kælipoka 😆
Tekur pláss sem ég hef ekki og langar að hann komi að notum!

1 month ago 4 0 0 0

Byrðin af því að vinna gegn bakslaginu fellur því að mestu á herðar hinsegin kennara. Þessi byrði útsetur þau fyrir auknu vinnuálagi sem getur haft áhrif á framtíð þeirra í starfi sem er nú þegar mjög krefjandi. Það hefur þá um leið áhrif á framtíð hinsegin inngildingu í skólum.

1 month ago 7 0 0 0

Önnur spyrna á móti með því að auka sýnileika og kennslu um hinsegin málefni. Þetta gera þau oft óstudd, án kerfislægs stuðnings af hálfu skólans.

1 month ago 6 0 1 0

Þessi lykilstaða berskjaldar þau í kjölfar aukins bakslags gegn hinsegin fólki sem verður vart á meðal nemenda, samkennara og stundum foreldra.
Þau bregðast sum við með því að draga úr sýnileika, draga úr hinsegin tengdri kennslu eða gera varúðarráðstafanir.

1 month ago 6 0 1 0