Ahh, vertu velkominn alltumlykjandi heimsenda-kapítalismi.
Posts by Hrafn Jónsson
Það fyndnasta við þessa séríslensku spillingu sem birtist í þessari hvalveiðiákvörðun er að eyða sem mestu pólitísku kapítali fyrir minnstu mögulegu hagsmuni.
Jæja, ég er að horfa á kappræður Stöðvar 2 í tímaflakki og það er bara mjög erfið, óþægileg og krefjandi orka þarna. Fleira var það ekki.
Ég ætla ekki að segja fólki hvernig það á að kjósa – en lýðræðið er svo leiðinlegt og innihaldslaust, og að einhverju leyti tilgangslaust ef það snýst um einhverja teknókratíska taktík. Lýðræði á að snúast um hugmyndafræði og sannfæringu. Annars getum við bara látið KPMG endurskoðendur stjórna þessu
Hvernig er stemningin hérna á góðafólkstwitter? Eru nokkuð allir alveg að fá taugaáfall?
Ég hef verið í mjög djúpri afneitun með þetta haust, en þetta haglél sem er í gangi núna er að láta mig horfast í augu við ákveðna raunveruleika.
Ég ætla að veðja aleigunni á að Sigurður Ingi eigi símann í digra símaveskinu, og að það séu svona 35 kvittanir í því.
Jóakim Aðalönd ferðast um heiminn og drepur fátækt fólk og innfædd dýr með stafnum sínum.
Gleðlilegan "mun ríkisstjórnin deyja eða bara restin af VG?" dag
Stundum fæ ég lánaða aðeins of sterka nikótínpúða og líður þá alveg eins og Gísla Pálma í Spilavítinu.
Já ok bara game over fyrir ríkisstjórnina
Ég hugsa enn mjög oft um síðasta skotið í Aftersun. Og bara þá mynd alla. Sem er merkilegt því ég hugsa vanalega ekki um neitt.
Skil ég það rétt að þetta sé basically alveg eins og Twitter nema Jakob Bjarnar mætir ekki á þriggja mánaða fresti og kallar mig aumingja?