Advertisement · 728 × 90

Posts by Helgi Jóns

Preview
Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum Þrýstihópur MAGA-hreyfingarinnar borgaði fyrir Norðurlandaferð hóps háttsettra Repúblikana til að hitta Sigmund Davíð Gunnlaugsson og aðra áhrifamenn af hægri væng stjórnmálanna. Meðal skipuleggjenda ...

Djöfull er kaldhæðnislegt að stjórnmálamaður, sem hefur alla tíð varað við leyniklíkum erlendra auðmanna, sé sjálfur undir beinum áhrifum frá leyniklíku erlendra auðmanna.
Þetta væri fyndið ef þetta væri ekki svona sorglegt.
heimildin.is/grein/26260/...

1 month ago 4 0 1 0
Post image

Ég er að horfa á A Knight of the Seven Kingdoms og það er að trufla mig smá hvað þessi gaur er alveg eins og Bergur Ebbi

1 month ago 1 0 0 0

Ég: læknir hjálp ég er með frjókornaofnæmi
Læknir: ok taktu þessar töflur
Ég: ég á líka erfitt með svefn
Læknir: þú átt ekki eftir að trúa þessu

1 month ago 0 0 0 0

Ég heyrði einu sinni um náunga sem notaði ekki eldhússkápana, heldur tvær uppþvottavélar.
Hann tók bara það sem hann þurfti úr uppþvottavél A og setti svo í uppþvottavél B, og þegar vél B var full setti hann hana í gang og setti óhreina tauið í vél A.
Þessi maður á skilið verðlaun.

2 months ago 3 0 0 0

Að skoða dót heima hjá gömlu ríku fólki sýnir mér bara hvað það var til mikið af hlutum í gamla daga sem voru notað í bara einum tilgangi og ekkert annað. Í dag er ég búinn að finna:
Sykurmolatöng
Vínberjaskæri
Skreyttan eldspýtupakka
2 bréfahnífa
300 silfurskeiðar
Skeiðahaldara

3 months ago 4 0 0 0

Ég var að afgreiða mjög venjulega miðaldra konu með húfu sem stóð á "SICK BITCH"

3 months ago 8 0 1 0

Ég keypti pressure cooker í jólagjöf handa sjálfum mér og þetta er svo mikið eldamennsku hack að mér líður eins og ég sé að svindla. Ég var að gera fullkominn karamelíseraðan lauk á hálftíma WHAT

3 months ago 1 0 0 0
Post image Post image Post image

Venjulegt fólk: *fær sér hund eða kött*
Ég: *langar í asna*

4 months ago 0 0 0 0

Tool er kannski eina rokkhljómsveitin þar sem gítarleikarinn er eiginlega ónauðsynlegur

4 months ago 0 0 0 0
Advertisement

Í Frakklandi er Chat GPT bara vitur köttur sem semur ljóð í skiptum fyrir sígarettur

5 months ago 5 0 1 0

Endurgerð á The Office nema á miðöldum og Jim heitir núna Jim Halberd

5 months ago 1 0 0 0

Vissuði að það er styttri tími á milli okkar og Kleópötru en á milli Kleópötru og grameðlunnar? 🫨 #mindblowing #facts

5 months ago 0 0 0 0

Allir hundar eru með beinagirnd

8 months ago 5 1 0 0

Samkvæmt mjög óvísindalegri könnun minni á kassa eru miðaldra karlar eru ca 10 sinnum minna líklegir til að kaupa poka en aðrir, þótt að þeir séu með hendurnar fullar af dóti

10 months ago 1 0 0 0

Ég geri mér fulla grein fyrir hvað þetta er ógeðslega miðaldra af mér, en af hverju er eins og allir íslenskir blaðamenn hafi gleymt að skrifa á íslensku?
Nánast allar fréttagreinar sem ég les eru fullar af málfars-og stafsetningarvillum sem grunnskólabörn eiga að vita betur en að gera.

10 months ago 5 0 0 0
Post image

Ég veit eiginlega ekki hvernig Disney fór að því að búa til kvikmynd sem fór í taugarnar á bæði góða og vonda fólkinu.
Þetta var dæmt til að mistakast frá upphafi. Eiginlega frekar impressive hversu mikið þessu var klúðrað

11 months ago 3 0 0 0

Það kemur alltaf jafn flatt upp á mig hvað skrúðgangan á 17.maí (þjóðhátíðardag Norðmanna) byrjar snemma.
Hver nennir að mæta í skrúðgöngu kl.8 um morgun??
17.júní prógrammið byrjar ekki fyrr en kl.11

11 months ago 0 0 1 0
Advertisement
Post image

Enginn:
Prófílmyndin hjá sextugum körlum:

1 year ago 2 0 0 0

Svo ekki sé minnst á hvað hann er fáránlega airbrushaður. Ungabörn eru með fleiri hrukkur í andlitinu

1 year ago 1 0 1 0
Post image Post image Post image

Ég hef aldrei horft á myndband með Mr. Beast en ég hef aldrei séð jafn kýlanlegt andlit á ævi minni.
Ég er ekki ofbeldisfullur almennt en hot damn hvað þessi maður þarf að vera löðrungaður

1 year ago 8 0 4 0

Ég var að sjá Alexander Rybak in the wild, fæ ég sjálfkrafa norskan ríkisborgararétt núna?

1 year ago 1 0 0 0

og þurfi helst ekki að geta gert neitt annað en að annaðhvort liggja eða sitja í 90 gráðu vinkli.
(2/2)

1 year ago 0 0 0 0

Það kom mér á óvart að sófar eru greinilega ekki lengur hannaðir með þægindi í huga.
Erum búin að fara í a.m.k. 5 mismunandi húsgagnaverslanir og ég held að hönnuðirnir á bak við flesta sófa haldi að fólk hafi 3 metra langar lappir og 50 cm búk, (1/2)

1 year ago 0 0 1 0
Post image

Þessi Brasilíska útgáfa af God Emperor of Dune fokking rokkar

1 year ago 4 0 0 0

Heyrðu offline tölvuleikurinn sem ég var að kaupa leyfir mér ekki að nota hann nema ég sé tengdur við netið og búi til reikning hjá þeim :)
Ég vona að ég nái að klára hann áður en Ubisoft hættir að runna serverana :)))

1 year ago 2 0 0 0

"Þessi púðluhundur er með fullstutta fætur. Þetta er til marks um óhreint blóð"

1 year ago 1 0 0 0

Hundarækt er eini staðurinn þar sem er enn samfélagslega samþykkt að vera ótrúlega racist

1 year ago 1 0 1 0
Advertisement

Slæmt fyrir mig (marsipan hater sem býr í Noregi)

1 year ago 1 0 0 0

Vissuði að í Svíþjóð er borg skilgreind sem bær með 10.000 íbúa eða fleiri?
Þannig samkvæmt sænskri skilgreiningu eru Kópavogur, Hafnarfjörður, Reykjanesbær, Akureyri, Garðabær, Mosfellsbær og Selfoss allt borgir.

1 year ago 2 0 0 0

Já, en það verður að vera Agatha Christie-style whodunnit morð, ekki niðurdrepandi Skandí-morð

1 year ago 1 0 0 0