Advertisement · 728 × 90

Posts by 𝐑 𝐀 𝐆 𝐆 𝐀 🦋

Má ég spyrja hvernig þeir eru of ólíkir?

2 weeks ago 4 0 1 0

Hvað er petsa?

2 weeks ago 1 0 0 0

Ég hef lítið tjáð mig um ESB. EN, fylgist vel og mikið með umræðunni. Heyrist mest í nei-fólkinu eða er nei-fólkið í meirihluta? Hver er ykkar upplifun og hvoru megin eruð þið og af hverju?

2 weeks ago 7 0 13 0

Á morgun byrja ég í síðasta starfsnáminu á betri stað og útskrifast svo í september. Ég kemst eiginlega ekki yfir það að ég hafi náð hingað miðað við hvað ég var veik fyrir jól. En hér er ég 🥺 2/2

3 weeks ago 12 0 3 0

Ég veit ég er ekki búin að vera mikið virk hérna en verð að koma með update. Ég byrjaði aftur í skólanum í janúar og kláraði þetta skólatímabil með 10 úr prófinu 🎉 ekkert eðlilega stolt af mér eftir að hafa lagt svo mikið í þetta nám. 1/2

3 weeks ago 19 0 1 0

Gleðilegan kváradag 🎉❤️

3 weeks ago 10 1 0 0

Að vera unglingamamma er að þvo fötin sem ég lagði á rúm dóttur í gær ný þvegin, sem hún ákvað að sofa á, var svo sagt að taka til og þau rötuðu aftur í þvottakörfuna.

2 months ago 5 0 0 0

Við fórum til Kraków í 5 daga í vetrarfríinu og það var svo æðislegt þarna. Fengum sól og 12° sem var nauðsynlegt eftir þennan kalda vetur hér í DK. Mikið skoðað, mikið borðað af góðum mat og verslað. Gott frí 🙏

2 months ago 6 0 0 0

Ég sit með Sparkletini að fagna því að fokking janúar er að klárast. Ógeðslega leiðinlegur, dimmur og kaldur mánuður. Alltaf verstur fyrir skammdegisþunglyndið og kræst hvað það er búið að vera slæmt í þetta skipti. Bjartari tímar framundan og styttra í vorið 🌱🌞

2 months ago 12 0 0 0

Gull 🤍🕊

2 months ago 16 0 1 0
Advertisement

Er Viktor Gísli að taka það sama og Gísli Marteinn eða er hann týndi sonur hans?

2 months ago 4 0 0 0

Ég hélt það væri bara normið 🫠

3 months ago 2 0 0 0

Ekkert betra en að koma heim eftir skóla og þurfa ekki að læra OG það eru til afgangar frá því í gær svo þarf ekki að spá í mat heldur. Vá mér fannst ég hafa sigrað lífið í dag 🏆

3 months ago 9 0 1 0

Jii, það er svo misjafnt eftir svæðum. Þar sem ég er myndi eg segja kannski 20 cm.

3 months ago 1 0 0 0

Ég lagði af stað í morgun en snéri við þegar ég var hálfnuð. Sem betur fer því það er allt ófært í kringum okkur 😅 en þetta var smá stemmari

3 months ago 1 0 1 0

Fór ekki í skólann sökum veðurs í dag. Veit að það kemur stundum snjór í DK en landið er á hliðinni og öllu aflýst. Var með smá heimþrá en var minnst hressilega á það hvað ég hataði veturinn 😅

3 months ago 7 0 3 0

Ég keypti þetta bara í vor og þetta er nauðsynlegt í mesta hitanum 😅 að vísu gott skjól í garðinum hjá mér

3 months ago 2 0 1 0
Snjórinn í garðinum mínum

Snjórinn í garðinum mínum

Ég vildi taka þetta niður í haust en maðurinn minn ekki. Hann trúði því ekki að það myndi koma mikill snjór. Ég hlæ núna í hvert skipti og sit undir hitateppinu við gluggann þegar hann fer reglulega út að banka snjóinn af sóltjaldinu 🫠

3 months ago 14 1 1 0
Advertisement

Haha, ég fór einmitt 2x í fjallgöngu í fyrra! Sem er alveg oftar en síðustu ár á Íslandi 😅

3 months ago 2 0 0 0
Skíðasvæði í Danmörku

Skíðasvæði í Danmörku

Stærsta skíðasvæði Danmerkur var að opna í vetur. Elska þennan metnað.

3 months ago 14 0 3 0

Það er byrjað að snjóa og ég er ekki enn komin með ný dekk 🙈 æðislegt bara!!

3 months ago 3 0 0 0

Við lögðum símum í gærkvöldi og það var svo næs 👌 gleðilegt nýtt ár elsku bláhiminn og takk fyrir árið 🎉

3 months ago 13 0 0 0

Þetta er svo krefjandi 😅 þegar ég kem heim úr vinnu/skóla og er að segja frá deginum þá kem ég ekki upp orði á íslensku því dagurinn minn var á dönsku 🙈

3 months ago 4 0 0 0

Nú, koggi að sjálfsögðu!
Annars bara mæjó, en fannst líka gott að gera sítrónupipar sósu með dilli.

3 months ago 6 1 1 1

Lungnaveiki maðurinn minn gat aldrei farið út á gamlárs þegar við bjuggum á Akureyri, sérstaklega ef það var logn. Mengunin ógeðsleg.

3 months ago 4 0 0 0
Advertisement

Ég hélt það líka 😬

3 months ago 2 0 0 0

Algjört kæruleysi að geyma þau þarna, nennti bara ekki að henda þeim í geymsluna því þau voru á bakvið hinn bílinn upp við runna á bakvið tunnurnar. Sást ekki í þau nema fara á bakvið bílinn. Við erum með grunaðan en líklega ekkert hægt að gera. Myndavélarnar koma á næstu dögum 🙏

3 months ago 2 0 1 0

Virkilega! Tókum eftir þessu um 4:30, maðurinn minn vaknaði af einhverri ástæðu og tók eftir því að þau væru horfin. Skeði á milli 23-4:30. Við vorum vakandi og allt kveikt til 2, ljós á bílastæðinu og allt. Búum í U hverfi og ekki við götu!

3 months ago 3 0 1 0

Til hamingju með Háska ❤️

3 months ago 1 0 0 0

Nýju vetrardekkjunum mínum var stolið í nótt sem áttu að fara undir bílinn í dag. Er skítsama um þessi dekk en finnst mega óþægilegt að einhver hafi verið að lurka við húsið okkar á meðan við sváfum 😬 nú er ég búin að panta myndavélar og aðrar gardínur af því ég get ekki verið róleg heima hjá mér 🫠

3 months ago 12 0 1 1