Já oft á daga alla daga.
Posts by Birta Björnsdóttir
Að vera alæta á tónlist.
Mánudagur til móðu.
Þegar mamma David Beckham tók töskuna mína í misgripum á kaffihúsi. Hljóp á eftir þeim og bankaði á bílrúðuna hjá Beckham. Við skiptumst á töskum og þau mæðgin voru hin elskulegustu.
Ahh alveg rétt, árstíðirnar fjórar. Vetur, sumar, vor og tímabilið þar sem saklaust fólk verður fyrir tilhæfulausum ofbeldisverkum lúsmýs.
Annar kafli: Menn í ullarpeysum og með lopahúfur.
Dagskrárliðurinn "Ómannglöggir skrifa fréttir" færist nú yfir á þetta forrit. Hér er fyrsti kafli.
Hvað gerist ef Liz Truss og J.D. Vance hittast?
Ferðasaga úr Heimskviðum helgarinnar. Mæli með <3
George Foreman er látinn. Hann átti fimm syni, George jr, George III, George IV, George V og George VI. Ein af sjö dætrum hans hér Georgetta.
Nefnið mér skilingsríkari barnsmæður.
Einmitt! Eitt lítið hugskeyti hefði líka dugað.
Önnur systir mín tók skjálausan dag án þess að láta mig vita. Hef því eðlilega gefið mér síðan snemma í morgun að hún sé ekki lengur meðal vor.
Hvaða ókunnugu manneskju þykir ykkur vænt um, og af hverju er það David Attenborough?
Succession og Band of Brothers takk!
Handbolti getur verið álíka pirrandi og snúin sæng inni í sængurveri og sokkur sem lekur niður hælinn í skóm!
Nei man því miður ekkert eftir þessu, mamma skráði bragðið greinilega ekki hjá sér.
Mamma var að senda mér mynd af manni sem birtist í einhverju dagblaði með upplýsingunum: "Þú beist þennan þegar þið voruð saman í leikskóla."
Þá er runninn upp þessi árlegi dagur þar sem mig langar svo að kunna að meta skötu. Finnst þau sem slafra henni í sig einhvern vegin aðeins betri en við hin sem getum ekki með nokkru móti komið henni niður ógrátandi.
Við fögnum þessu 👏
Upplýsist það við lestur blaðsins af hverju forsíðumyndin er af George Michael? Það var tæpast hann sem plantaði líkum en ekki laukum.
Ég bankaði einu sinni á bílrúðu hjá David Beckham því mamma hans, sem var um borð, tók töskuna mína óvart í misgripum fyrir sína á kaffihúsi í London.
„Af hverju labba allir svona hægt?“
Kaflinn í ævisögunni sem fjallar um raunir hraðskreiðra á leið um flugvelli og aðra fjölfarna staði.
One of the better assignment here in #Brussels for @ruvfrettir was to visit the Musée royal d’histoire
naturelle, to see the Great Auk, the last of its kind, killed in 1844 in #Iceland. A powerful reminder of how humans are affecting the natural world.
#biodiversity
#extinction
Þá liggur niðurstaða helgarinnar fyrir, allt svalasta fólks landsins er samankomið í hljómsveitinni GusGus.
💔
Jafnvel enn mikilvægari regla: Ekki kalla píkur „vinkonuna í kjallaranum“
Þetta er væntanlegt inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og á rétta staði á ruv.is. Stundum tekur það aðeins lengri tíma með fyrsta þátt í nýrri seríu en eftir það á þetta að skila sér strax á alla rétta staði.
Jú til dæmis á spilara RÚV.
www.ruv.is/utvarp/spila...
Góðan daginn! Mæli með að fyrstu sjö mínútum dagsins verði varið með þetta í eyrunum. Nýtt fréttahlaðvarp frá fréttastofu RÚV þar sem Freyr Gígja Gunnarsson stýrir skútunni. Allt sem þú þarft að vita um fréttamál dagsins á nokkrum mínútum.
spotify.link/4NnL4tIVNDb