Fékk skemmtilega spurningu í dag sem tengist verkefni/áhugamáli sem ég hef verið að sinna. Fékk mig til að hugsa af hverju ég fór stökk út í djúpa pottinn. Mitt ráð er:
1. Byrjið
2. Gerið mistök
3. Lærið af mistökunum
4. Endurtakið
Áður en þið vitið af kemur færni og þekking sem er ómetanleg.
Posts by Þorsteinn 🌵
Íslandsbanki 900 kr. (Swift)
Arion 895 kr.
Landsbankinn 700 kr. (Sepa)
Sorpumræðan undanfarna mánuði hefur haft þau áhrifað núna þurrka ég allt plast sem ég skola svo það brenni betur.
Ef þetta er þýtt af stjórnmálísku þá er Katrín að segja "Við settum lög sem gera mjög viðkvæman hóp heimilislausan og fluttum vandamálin sem því fylgja yfir á það sveitarfélag sem viðkomandi er staddur í þá stundina, vitandi af því að nákvæmlega þannig myndi þetta gerast þegar lögin voru samþykkt."
Það sem mér finnst merkilegast eftir 30 ára afmæli Dominos er fyrst og fremst þrennt. Ananas á pepperonipizzunni? Hamborgarapizza?? Gular baunir á grænmetispizzunni???
Dominos tókst að sanna þrennutilgátuna. Pizzur geta bara verið tvennt af þrennu, ódýrar, góðar eða fljótgerðar.
Ég á einn boðsmiða ef þið vitið um einhvern sem vill komast hingað.
Munurinn á samkeppni og samráði er að í samkeppnisumhverfi lækka allir verðið þegar einn lækkar. Í samráði hækka allir verð þegar einn hækkar þrátt fyrir engar breytingar á innkaupsverði. Olíufélögin eru í bullandi samráði og komast upp með það árum saman án þess að neitt sé gert í því.
Meira bullið. Það er ekki hægt að selja lækinn án vatnsins. Vatn er gríðarlega verðmæt auðlind og öll sala á auðlindum til erlendra aðila þýðir bara eitt, Ísland verður áfram í sömu stöðu og nýlendurnar voru á öldum áður. Gríðarlegar auðlindir í landinu en á sama gríðarleg fátækt meðal almennings.
Reyndar vegna þess að vísitala neysluverðs er notuð til verðtryggingar 2 mánuðum eftir birtingu þá þyrfti alltaf rúman fyrirvara á breytingum. En á móti kemur að ég hef alltaf hinn kostinn að endurfjármagna lánið. Í dag tekur það bara nokkra daga eftir að rafrænu þinglýsingarnar komu til sögunnar.
Fyrsta lánastofnunin sem byði upp á lán með breytanlegum lánaforsendum fengi marga til sín. Ef það væri t.d. hægt að stilla í netbanka að lán sé á 30% óverðtryggðum vöxtum og 70% verðtryggðum þennan mánuðinn og næsta mánuð 60% óverðtryggðum og 40% verðtryggðum. Myndi pottþétt slá í gegn.
Nýju lögin frá 2021 segja að kirkjuþing setji starfsreglur varðandi kosningu biskupa og kjörtímabilið er núna 6 ár. Þær reglur voru settar 28. mars 2022. Núverandi biskup var skipaður til 5 ára og gilti sú skipun til 1. júlí 2022. Í 12 mánuði hefur því enginn löglega kjörinn biskup setið í embætti.