Advertisement · 728 × 90

Posts by Þorsteinn 🌵

Fékk skemmtilega spurningu í dag sem tengist verkefni/áhugamáli sem ég hef verið að sinna. Fékk mig til að hugsa af hverju ég fór stökk út í djúpa pottinn. Mitt ráð er:
1. Byrjið
2. Gerið mistök
3. Lærið af mistökunum
4. Endurtakið
Áður en þið vitið af kemur færni og þekking sem er ómetanleg.

2 years ago 1 0 0 0

Íslandsbanki 900 kr. (Swift)
Arion 895 kr.
Landsbankinn 700 kr. (Sepa)

2 years ago 0 0 0 0
Preview
Nærmynd af konunum í tunnunum - Vísir Mótmælendurnir tveir sem komu sér fyrir í tunnum hvalveiðibátanna Hvals 8 og Hvals 9 í Reykjavíkurhöfn í gærmorgun til að mótmæla hvalveiðum Íslendinga hafa vakið athygli margra.

Legg til að við gefum þeim íslenskan ríkisborgararétt.

2 years ago 1 0 0 0

Sorpumræðan undanfarna mánuði hefur haft þau áhrifað núna þurrka ég allt plast sem ég skola svo það brenni betur.

2 years ago 0 0 0 0
Preview
Sveitar­fé­lögum ekki heimilt að synja fólkinu um þjónustu - Vísir Dvalarsveitarfélagi er ekki rétt að synja einstaklingi um fjárhagsaðstoð af þeirri einu ástæðu að réttindi hans sem umsækjanda um alþjóðlega vernd hafi fallið niður. Þetta segir í ...

Ef þetta er þýtt af stjórnmálísku þá er Katrín að segja "Við settum lög sem gera mjög viðkvæman hóp heimilislausan og fluttum vandamálin sem því fylgja yfir á það sveitarfélag sem viðkomandi er staddur í þá stundina, vitandi af því að nákvæmlega þannig myndi þetta gerast þegar lögin voru samþykkt."

2 years ago 0 0 0 0
Post image

Það sem mér finnst merkilegast eftir 30 ára afmæli Dominos er fyrst og fremst þrennt. Ananas á pepperonipizzunni? Hamborgarapizza?? Gular baunir á grænmetispizzunni???

2 years ago 1 0 0 0

Dominos tókst að sanna þrennutilgátuna. Pizzur geta bara verið tvennt af þrennu, ódýrar, góðar eða fljótgerðar.

2 years ago 1 0 0 0
Advertisement

Ég á einn boðsmiða ef þið vitið um einhvern sem vill komast hingað.

2 years ago 1 0 1 0
Preview
Verkið hófst ekki nógu snemma til að tíma­lína stæðist - Vísir Átta mánaða tafir á fram­kvæmdum við Hlemm skýrast af því að verkið hófst ekki nógu snemma til þess að tíma­lína stæðist og þá var ekkert gert í fjóra mánuði í vetur vegna ...

Þessi afsökun á við um öll verkefni.

2 years ago 2 0 0 0
Post image Post image

Munurinn á samkeppni og samráði er að í samkeppnisumhverfi lækka allir verðið þegar einn lækkar. Í samráði hækka allir verð þegar einn hækkar þrátt fyrir engar breytingar á innkaupsverði. Olíufélögin eru í bullandi samráði og komast upp með það árum saman án þess að neitt sé gert í því.

2 years ago 1 0 0 0
Preview
Ekki sé verið að selja vatnið heldur einn læk - Vísir Bæjarstjóri Ölfuss segir að sala á hlutabréfum í fyrirtækinu Icelandic Water Holdings til erlendra fjárfesta þýði ekki að verið sé að selja vatnið með greini úr landi. Slíkar fully...

Meira bullið. Það er ekki hægt að selja lækinn án vatnsins. Vatn er gríðarlega verðmæt auðlind og öll sala á auðlindum til erlendra aðila þýðir bara eitt, Ísland verður áfram í sömu stöðu og nýlendurnar voru á öldum áður. Gríðarlegar auðlindir í landinu en á sama gríðarleg fátækt meðal almennings.

2 years ago 1 0 0 0

Reyndar vegna þess að vísitala neysluverðs er notuð til verðtryggingar 2 mánuðum eftir birtingu þá þyrfti alltaf rúman fyrirvara á breytingum. En á móti kemur að ég hef alltaf hinn kostinn að endurfjármagna lánið. Í dag tekur það bara nokkra daga eftir að rafrænu þinglýsingarnar komu til sögunnar.

2 years ago 0 0 0 0
Preview
Er rétti tíminn til að fara yfir í verðtryggt lán? Ef marka má forspá Seðlabanka Íslands verða verðtryggð húsnæðislán mun hagstæðari í heildina en óverðtryggð lán næstu misseri. Þar með er þó ekki öll sagan sögð.

Fyrsta lánastofnunin sem byði upp á lán með breytanlegum lánaforsendum fengi marga til sín. Ef það væri t.d. hægt að stilla í netbanka að lán sé á 30% óverðtryggðum vöxtum og 70% verðtryggðum þennan mánuðinn og næsta mánuð 60% óverðtryggðum og 40% verðtryggðum. Myndi pottþétt slá í gegn.

2 years ago 0 0 1 0
Preview
Vissi að ráðning biskups væri á gráu svæði - RÚV.is Forseti kirkjuþings segir að hún hafi vitað að hún væri á gráu svæði þegar hún gerði ráðningarsamning við biskup Íslands án þess að fá til þess umboð frá kirkjuþingi.

Nýju lögin frá 2021 segja að kirkjuþing setji starfsreglur varðandi kosningu biskupa og kjörtímabilið er núna 6 ár. Þær reglur voru settar 28. mars 2022. Núverandi biskup var skipaður til 5 ára og gilti sú skipun til 1. júlí 2022. Í 12 mánuði hefur því enginn löglega kjörinn biskup setið í embætti.

2 years ago 2 0 0 0