Sameiginleg yfirlýsing BSRB og KÍ: „Í mörgum tillögum starfshópsins er vísað til fyrirmynda frá hinum Norðurlöndunum. Þá er ekki óeðlilegt að litið sé til reglna um áminningarskyldu hjá frændþjóðum okkar. Þar gilda reglur um aðvörun eða áminningu um alla á vinnumarkaði.” #BSRB #KÍ #Sameyki
Lífeyrisdeild Sameykis stóð fyrir fundi um lífeyrisréttindi opinberra starsmanna í gær. Umfjöllunarefnið var grunnstoðir íslenska lífeyriskerfisins og þættir sem þarf að hafa í huga við lífeyristöku. Sjá fréttir af fundinum á vef Sameykis.
#sameyki
Lögfræðingur í kjaradeild Sameykis, Jenný Stefánsdóttir, skrifar um ábyrgð vinnuveitenda þegar konur eru beittar kynferðislegu ofbeldi eða kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustað. #Sameyki #ofbeldigegnkonum #kynbundiðofbeldi #SayNoStopVAW
Drífa Snædal, talskona Stígamóta: „Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi er faraldur í heiminum. Það er því miður ekki í rénun eins og öll tölfræði sýnir og sannar.“ #Sameyki #Stígamót #ofbeldigegnkonum #kynbundiðofbeldi #SayNoStopVAW
„Við eigum að hætta að vera hrædd við umræðuna um gerendur. Okkur á ekki að detta það í hug að ofbeldi lagist af sjálfu sér – að það bara hætti einn daginn,“ segir Jenný Kristín Valberg hjá Bjarkarhlíð. #ofbeldigegnkonum #bjarkarhlíð #sameyki #Violenceagainstwomen
Kulnun er heilkenni sem er afleiðing langvarandi streitu á vinnustað sem ekki hefur tekist á árangursríkan hátt að ná stjórn á. Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarna hjá VIRK, skrifar um kulnun á íslenskum vinnumarkaði. #sameyki #kulnun #virk
Félagsfólk í Sameyki þarf að panta sérstaklega prentútgáfu Orlofsblaðs Sameykis vilji það fá blaðið sent með pósti. #sameyki
Kári Sigurðsson tekur við formennsku hjá Sameyki. Kári, sem verið hefur varaformaður Sameykis, tók við formennsku í félaginu 28. janúar sl.
#sameyki